Fréttir

true

Siglt af stað frá Tyrklandi í kvöld – myndband

“Því fylgir vissulega mikill spenningur að taka við nýju og glæsilegu skipi. Þótt Sturlaugur H. Böðvarsson AK sé mjög gott skip, og hafi reynst HB Granda vel, þá er því ekki að leyna að það er komið til ára sinna,“ segir Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Sturlaugi, en hann tekur í dag við skipstjórn á Akurey…Lesa meira

true

Miklar framkvæmdir við Fosshótel Reykholti

Í síðustu viku var Fosshótel Reykholti opnað að nýju eftir gagngerar endurbætur á húsum og lóð. Hafa framkvæmdir staðið yfir frá því í fyrrasumar. Í gær var svo hafist handa við að reisa fyrstu einingarnar í 28 herbergja viðbyggingu austan við hótelið. Eldra hluta hótelsins hefur verið breytt mikið, þ.á.m. matsal og eldhúsi, tekið var…Lesa meira

true

Þverá og Kjarará verða opnaðar á laugardaginn

Það má búast við fínni opnun í Þverá og Kjarará í Borgarfirði en veiði hefst þar á laugardaginn. Lax hefur fyrir þónokkru sést í ánni og í töluverðu magni. „Já, bæði Þverá og Kjarará verða opnaðar á laugardaginn. Við Ingólfur Ásgeirsson verðum saman á stöng,“ sagði Aðalsteinn Pétursson er við spurðum um opnun í ánum.…Lesa meira

true

Gönguferðir um hafnarsvæðið á Akranesi

Næstkomandi laugardag bjóða Faxaflóahafnir öllum sem vilja í gönguferðir um hafnarsvæðið á Akranesi undir leiðsögn Gunnlaugs Haraldssonar þjóðháttafræðings. Þetta er gert í tilefni þess að í ár eru 110 ár liðin frá því Steinsvör var gerð. Hafnargangan hefst við Hafnarhúsið á Akranesi, þaðan er gengið að Steinsvör og endað við Lambhúsasund. Fyrri gangan er klukkan…Lesa meira

true

Svavar Knútur og Kristjana skemmta

Tónlistarfólkið Svavar Knútur og Kristjana Stefánsdóttir munu skemmta fólki á Vesturlandi um næstu helgi á tvennum tónleikum. Þau koma fram laugardaginn 10. júní klukkan 20 í Landnámssetrinu í Borgarnesi og sunnudaginn 11. júní kl. 20 í hlöðunni á Bjarteyjarsandi í Hvalfjarðarsveit. Svavar Knútur og Kristjana Stefáns koma aftur saman á sinni árlegu sumartónleikaferð. Þau hafa…Lesa meira

true

Rangæingar duglegastir í sund

Metþátttaka var í Hreyfiviku UMFÍ sem fram fór dagana 29. maí til 4. júní. Í ár stóðu boðberar hreyfingar í Hreyfivikunni fyrir 490 viðburðum í 60 bæjarfélögum um allt land og tóku 43.000 manns þátt í viðburðunum. Þátttakendur hafa aldrei verið fleiri. Það er skemmtilegt frá því að segja að sum bæjarfélög skelltu sér í…Lesa meira

true

Tvær sumarsýningar í Norska húsinu í Stykkishólmi

Laugardaginn 10. júní kl. 15:00 verða sumarsýningar opnaðar í Norska húsinu í Stykkishólmi. Að þessu sinni verða þær tvær; myndlistarsýning eftir Ernu Guðmarsdóttur, Fuglar og Fantasíur, og ljósmyndasýning eftir Hjördísi Eyþórsdóttur af Snæfellsnesi. Erna Guðmarsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1940 og stundaði fyrst listnám við Myndlistaskóla Reykjavíkur og lauk svo prófi með kennsluréttindum frá…Lesa meira

true

Guðmundur Runólfsson hf. stækkar fiskvinnsluna

Sjávarútvegsfyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði hefur tekið ákvörðun um að stækka og endurbæta fiskvinnslu fyrirtækisins töluvert mikið. Byggt verður nýtt tvö þúsund fermetra hús við gömlu vinnsluna. Guðmundur Smári Guðmundsson framkvæmdastjóri horfir björtum augum til framtíðar. „Fyrsta skóflustungan verður tekin núna á laugardaginn fyrir sjómannadag,“ sagði Smári í stuttu spjalli við Skessuhorn. „Við erum…Lesa meira

true

Bjóða upp á Fish & Chips á Arnarstapa

Á Arnarstapa reka hjónin Jóhannes Ólafsson og Herdís Þórðardóttir frá Akranesi, ásamt börnum sínum, veitingaskúr og selja fisk og franskar. Þegar Skessuhorn bar að garði nýverið voru feðgarnir Jóhannes og Guðjón sonur hans að afgreiða ferðamenn um breska þjóðarréttinn Fish and Chips. Þau Herdís og Jóhannes eiga sumarhús á Arnarstapa eins og fleiri Skagamenn og…Lesa meira

true

Nær allar skemmtiferðaskipakomur á Akranes falla niður

Búist var við töluverðum fjölda ferðafólks til Akraness í sumar vegna komu skemmtiferðaskipa til bæjarins. Í fyrrasumar tilkynntu Faxaflóahafnir að skemmtiferðaskipið Le Boreal myndi koma til Akraness 30. júlí næstkomandi og hafa viðdvöl við aðalhafnargarðinn. Le Boreal tekur 264 farþega en að auki eru 139 í áhöfninni. Snemma á þessu ári tilkynntu Faxaflóahafnir svo að…Lesa meira