Fréttir

true

Guðmundur Runólfsson hf. stækkar fiskvinnsluna

Sjávarútvegsfyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði hefur tekið ákvörðun um að stækka og endurbæta fiskvinnslu fyrirtækisins töluvert mikið. Byggt verður nýtt tvö þúsund fermetra hús við gömlu vinnsluna. Guðmundur Smári Guðmundsson framkvæmdastjóri horfir björtum augum til framtíðar. „Fyrsta skóflustungan verður tekin núna á laugardaginn fyrir sjómannadag,“ sagði Smári í stuttu spjalli við Skessuhorn. „Við erum…Lesa meira

true

Bjóða upp á Fish & Chips á Arnarstapa

Á Arnarstapa reka hjónin Jóhannes Ólafsson og Herdís Þórðardóttir frá Akranesi, ásamt börnum sínum, veitingaskúr og selja fisk og franskar. Þegar Skessuhorn bar að garði nýverið voru feðgarnir Jóhannes og Guðjón sonur hans að afgreiða ferðamenn um breska þjóðarréttinn Fish and Chips. Þau Herdís og Jóhannes eiga sumarhús á Arnarstapa eins og fleiri Skagamenn og…Lesa meira

true

Nær allar skemmtiferðaskipakomur á Akranes falla niður

Búist var við töluverðum fjölda ferðafólks til Akraness í sumar vegna komu skemmtiferðaskipa til bæjarins. Í fyrrasumar tilkynntu Faxaflóahafnir að skemmtiferðaskipið Le Boreal myndi koma til Akraness 30. júlí næstkomandi og hafa viðdvöl við aðalhafnargarðinn. Le Boreal tekur 264 farþega en að auki eru 139 í áhöfninni. Snemma á þessu ári tilkynntu Faxaflóahafnir svo að…Lesa meira

true

Skagamenn mæta Leikni Reykjavík í 8-liða úrslitum

Í hádeginu í dag var dregið í 8-liða úrslit Borgunarbikarsins í knattspyrnu karla. ÍA var eitt af þeim átta liðum sem voru í pottinum en sex úrvalsdeildar lið og tvö fyrstu deildar lið eru eftir. Skagamenn drógust á móti fyrstu deildar liðinu Leikni Reykjavík og fer leikurinn fram í Breiðholtinu mánudaginn 3. júlí. Skagamenn náðu…Lesa meira

true

Tíu ára afmæli Vatnasafnsins fagnað

Blásið var til veislu í Vatnasafninu í Stykkishólmi 27. maí síðastliðinn í tilefni af tíu ára afmæli safnsins. Afmælisveislan hófst á ræðum frá Hafdísi Bjarnadóttur, forseta bæjarstjórnar í Stykkishólmi, og James Lingwood, forsvarsmanni Artangel listasamtakanna í Bretlandi, um sögu og tilurð safnsins. Safnið er langtíma verkefni skapað af Roni Horn og endurspeglar náin tengsl hennar…Lesa meira

true

Hryssan komin í leitirnar

Hér á vef Skessuhorns var á mánudaginn birt tilkynning frá Lögreglunni á Vesturlandi um brúna hryssu sem tapast hafði úr stóði við gatnamót á Uxahryggjum innan við Skorradal og Lundarreykjadal. Árvökull bóndi sem lesið hafði fréttina tilkynnti um brúnt hross við sauðfjárvarnargirðingu ofan við Ferstiklu í Hvalfirði. Þetta reyndist vera hryssan sem saknað var. Hún…Lesa meira

true

Vesturland valið myndrænasti áfangastaður Evrópu 2017

Ferðaritið Luxury Travel Guide hefur valið Vesturland ,,Scenic destination of Europe 2017”. Hér er um gríðarlega mikilvæga viðurkenningu að ræða sem vafalaust mun stórauka áhuga vel borgandi ferðamanna fyrir Vesturlandi. Luxury Travel Guide sérhæfir sig í skrifum um áfangastaði, hótel, heilsulindir, tækni og fleira. Blaðið leggur áherslu á betur borgandi ferðamenn. Vesturland er valið vegna…Lesa meira

true

Meira set en áætlað var – engin stangveiði í sumar í Andakílsá

Veiðimálasérfræðingar Hafrannsóknastofnunar hafa á síðustu dögum gert tvennar mælingar á seti í farvegi Andakílsár. Mat þeirra er að nú þegar hafi nokkru skolað úr farvegi árinnar. Í dag verður síðan þriðja mælingin gerð og í framhaldi af því metið hvort skynsamlegt sé að grípa til aðgerða til að herða á því að setið berist niður…Lesa meira

true

Sjómannadagsblað fylgir Skessuhorni í dag

Með Skessuhorni í dag fylgir 36 síðna blað helgað sjómannadeginum næstkomandi sunnudag. Í blaðinu er m.a. rætt við sjómenn víðsvegar um landshlutann, ýmist í stuttu bryggjuspjalli eða lengri viðtölum. Sagt er frá sagnfræðilegu verkefni um sjókonur fyrri alda, rætt við sjómannskonur og fleiri sem tengjast greininni. Þá er rætt við konur sem stóðu vaktina við…Lesa meira

true

Bæði hefðbundin grænmetisræktun og tilraunastarfsemi

Jón Guðmundsson garðyrkjumaður fékk á síðasta ári leigt land undir starfsemi gróðrarstöðvar við Miðvogslæk, skammt utan Akraness. Hann hefur fram til þessa ræktað plöntur, grænmeti og ávexti á ýmsum stöðum, m.a. í garðinum fyrir utan heimili sitt við Vesturgötu. Þar hefur hann ræktað garðinn sinn undanfarin 17 ár, eða allt frá því hann og Katrín…Lesa meira