Fréttir

true

Lög um heimagistingu einfölduð

Krafa um starfsleyfi heilbrigðisnefnda vegna heimagistingar hefur verið felld niður með breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sem samþykkt var á Alþingi í síðustu viku. Breytingin tekur gildi 1. júlí næstkomandi. „Breytingin lýtur eingöngu að heimagistingu, sem er gisting á lögheimili einstaklings eða einni annarri fasteign sem hann hefur persónuleg not af, t.d. sumarbústað…Lesa meira

true

Apótekarinn styrkir ungt fólk með krabbamein til lyfjakaupa

Apótekarinn hefur í samstarfi við stuðningsfélagið Kraft hrundið af stað átaki sem ætlað er að styðja við félagsmenn Krafts sem lent hafa í fjárhagsörðugleikum vegna sjúkdóms síns. Kraftur hefur það að leiðarljósi að aðstoða og styðja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess en innan félagsins hefur verið starfræktur neyðarsjóður sem styrkir…Lesa meira

true

Gervigras verður lagt yfir Ólafsvíkurvöll í haust

Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar í byrjun þessa mánaðar var samþykkt að lagt verði gervigras yfir Ólafsvíkurvöll. Stefnt er að því að hefja framkvæmd að loknu keppnistímabili í haust og er áætlaður kostnaður 150 milljónir króna. Í fundargerð Snæfellsbæjar segir; „Með því að fara í þá framkvæmd þá nýtist núverandi aðstaða og jafnframt gætu allir flokkar…Lesa meira

true

Fyrrum landsliðsþjálfari Norður-Kóreu tekur við þjálfun Skallagríms

Í lok maí tók Skallagrímur þá ákvörðun að endursemja ekki við körfuknattleiksþjálfarann Manuel Rodriquez þrátt fyrir góðan árangur kvennaliðs Skallagríms í vetur. Skallagrímur var nýliði í Dominosdeildinni í vetur og varð í þriðja sæti í deildinni, komst í undanúrslit um Íslandsmeistaratitilinn og úrslit í bikarkeppninni. Félagið hefur nú ráðið inn nýjan þjálfara en Spánverjinn Ricardo…Lesa meira

true

Sláttur hafinn á Vesturlandi

Skúli Guðbjörnsson bóndi á Miðskógi í Dölum byrjaði slátt síðastliðinn laugardag, 3. júní. Skúli segist í samtali við Skessuhorn hafa borið á túnin 6. maí og sprettutíð hafi verið afar góð allan maímánuð, hlýtt en þó hæfileg rekja einnig. Uppskeran sé því mjög góð úr þessum fyrsta slætti en hann segist sem kúabóndi leggja mikla…Lesa meira

true

Akranesleikarnir heppnuðust vel

Um síðustu helgi fóru fram hinir árlegu Akranesleikar í sundi. Í ár tóku 280 sundmenn þátt frá tólf félögum. Stigahæsta liðið á mótinu var Sundfélag Hafnarfjarðar, í öðru sæti var Sundfélag Akraness og í því þriðja var Sundfélagið Óðinn. Stigahæstu sundmenn mótsins voru Katrín Róbertsdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar í fyrsta sæti, í öðru var Una…Lesa meira

true

Brautskráð frá Landbúnaðarháskóla Íslands

Síðastliðinn föstudag var útskrift nemenda frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Fór athöfnin fram í Hjálmakletti í Borgarnesi. Dr. Björn Þorsteinsson rektor LbhÍ, flutti ræðu og óskaði nemendum velfarnaðar. Borgarfjarðarstöllurnar Steinunn og Sigríður Þorvaldsdætur frá Hjarðarholti sungu við undirleik Birnu Kristínar Ásbjörnsdóttur frá Ásbjarnarstöðum. Að þessu sinni útskrifuðust rétt rúmlega 60 nemendur af fjórum námsstigum skólans. 25 búfræðingar,…Lesa meira

true

Skráning hafin á Landsmót UMFÍ 50+ í Hveragerði

Undirbúningur gengur afar vel fyrir Landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer í Hveragerði um Jónsmessuhelgina, að sögn Ómars Braga Stefánssonar framkvæmdastjóra mótsins. Dagskráin er tilbúin og búið að setja sérgreinastjóra yfir hverja grein. Landsmót UMFÍ fyrir fimmtíu ára og eldri hafa verið haldin víðs vegar um landið síðan fyrsta mótið var haldið á Hvammstanga árið…Lesa meira

true

Öruggur sigur KA á Víkingi Ólafsvík

Á Ólafsvíkurvelli í gær tók Víkingur á móti KA í sjöttu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. KA-menn hafa verið nokkuð sprækir í deildinni og voru með átta stig fyrir leikinn en Víkingur í neðsta sæti með þrjú stig. KA átti leikinn á mánudaginn frá upphafi til enda og unnu hann örugglega 4-1. Það tók ekki…Lesa meira

true

Valdís Þóra fyrsti varamaður á Opna bandaríska

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni verður fyrsti varamaður á Opna bandaríska mótinu í golfi og á því möguleika á því að verða fyrst Íslendinga til að keppa á risamóti í golfi. Valdís Þóra var hársbreidd frá því að komast inn á mótið eftir frábæra frammistöðu á úrtökumóti sem fram fór í Buckinghamshire í Englandi.…Lesa meira