Fréttir

true

FH, Valur og ÍR styrkja Samiru Suleman

Eins og Skessuhorn greindi frá í gær greindist Samira Suleman leikmaður kvennaliðs Víkings Ólafsvíkur með æxli í kviðarholi í vor. Stjórn Víking ákvað strax eftir að Samira greindist með æxlið að hún skyldi fá þá læknisþjónustu sem hún þyrfti hérlendis. Eftir aðgerðina tekur við erfitt bataferli hjá Samiru en hún mun ekki leika með liði…Lesa meira

true

Garason opnar sýningu á Akranesi

Á morgun, föstudaginn 2. júní kl. 17:00, opnar rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn GARASON (Guðlaugur Arason) sýningu á verkum sem hann kallar Álfabækur í Bókasafni Akraness. Þetta listform hafði ekki verið sýnt á Íslandi fyrr en Guðlaugur hélt sína fyrstu einkasýningu á Akureyri 2013. Síðan hefur hann haldið margar sýningar út um allt land og er nú…Lesa meira

true

Sýndu Dýrin í Hálsaskógi á árshátíð

Árshátíð Hvanneyrardeildar Grunnskóla Borgarfjarðar fór fram í síðustu viku. Dýrin í Hálsaskógi voru sýnd að viðstöddu fjölmenni. Skjólbeltin eru kjörinn árshátíðarstaður og veðrið var bókstaflega eftir pöntun. Við þetta tilefni færði Kvenfélagið 19. júní deildinni peningagjöf. Gjöfin nýtist nemendum og var ákveðið að hún færi til kaupa á hljómflutningstækjum. Fleiri myndir Kristínar Jónsdóttur ljósmyndara eru…Lesa meira

true

Níu af hverjum tíu með hjálm

Tryggingafélagið VÍS hefur síðustu sex ár gert könnun á hjálmanotkun hjólreiðamanna, á sama tíma og átakið Hjólað í vinnuna hefur staðið yfir. Töluverð breyting hefur orðið á hjálmanotkun hjólreiðafólks á þessum sex árum. Í ár var hjálmanotkun könnuð hjá 1.304 einstaklingum og voru 89% þeirra með hjálm. Það hlutfall var einungis 74% fyrir sex árum.…Lesa meira

true

Byrjað að leggja rafstreng frá Ólafsvík

Nýverið hóf Steypustöð Skagafjarðar framkvæmdir við lagningu Grundarfjarðarlínu. Lagður verður 66 kW jarðstrengur milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar ásamt byggingu nýs tengivirkis í Ólafsvík. Með þessari framkvæmd mun afhendingaröryggi raforkudreifingar batna til muna á Snæfellsnesi. Vinna við undirbúning, hönnun og útboð vegna framkvæmdanna hófst árið 2015. Framkvæmdir hófust svo á síðasta ári með byggingu tengivirkis í…Lesa meira

true

Jónína Erna tók sæti á Alþingi í dag

Í dag tók Jónína Erna Arnardóttir varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins sæti á Alþingi í fjarveru Haraldar Benediktssonar formanns fjárlaganefndar. Jónína Erna starfar sem tónlistarkennari og sveitastjórnarfulltrúi í Borgarbyggð. Hún er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og leiðsögumannanám frá sama skóla. Hún er gift Vífli Karlssyni hagfræðingi og á með honum tvö börn. Þetta er…Lesa meira

true

Hærri skattur á gistingu minnkar skatttekjur

„Tekjur hins opinbera munu minnka ef skattur á skráða gistingu verður hækkaður.“ Þetta kom fram í máli dr. Jeroen Oskam á hádegisfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem haldinn var í gær. Þessari þróun er spáð vegna fjölgunar óskráðra Airbnb gistirýma og möguleika þess iðnaðar að taka við fleiri gestum. Einnig kom fram á fundinum að fjöldi gistirýma…Lesa meira

true

Snæfell semur við sex leikmenn

Sex ungir og efnilegir körfuknattleiksmenn skrifuðu á miðvikudaginn samninga við Körfuknattleiksdeild Snæfells og munu leika með karlaliði félagsins í 1. deildinni á næsta ári. Gunnar Svanlaugsson, formaður kkd. Snæfells og Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson, formaður aðalstjórnar félagsins, skrifuðu undir fyrir hönd þess. Leikmennirnir sem rituðu nafn sitt á samninga eru þeir Geir Elías Úlfur Helgason, Jón…Lesa meira

true

Hvassviðri spáð á morgun

Veðurstofan spáir að hvessi af austri í nótt um leið og skil lægðar koma úr suðri og fara yfir landið.  Frá klukkan sjö í fyrramálið má gera ráð fyrir hviðum í Mýrdal og undir Eyjafjöllum sem og í Öræfum við Sandfell allt að 35-40 m/s. Vindhraði verður í hámarki á milli kl. 09 og 11,…Lesa meira

true

Skagamenn í átta liða úrslit bikars í fyrsta sinn í áratug

Í gær tóku Skagamenn á móti Gróttu á Akranesvelli í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu karla. Ein deild skilur liðin að á Íslandsmótinu en Skagamenn spila í efstu deild og eru þar í næstneðsta sæti en Grótta er í níunda sæti fyrstu deildar. Það bjuggust því allir við auðveldum sigri Skagamanna þó ekkert sé…Lesa meira