Fréttir

true

Biðla til almennings og fyrirtækja um stuðning við afrekssjóð sundfólks

Sundfélag Akraness biðlar til fyrirtækja og velunnara félagsins um stuðning til kostnaðarsams uppbyggingarstarfs. Mikil aðsókn hefur verið bæði í sundskóla félagsins og einnig í starfsemi yngri hópanna. Í elstu aldurshópunum er sundfólk sem keppir fyrir hönd félagsins en þar á meðal er afreksfólk sem keppir fyrir Íslands hönd á mörgum mótum, bæði hér á landi…Lesa meira

true

Ferðablaðið Travel West Iceland komið út

Nú í byrjun mánaðarins kom hið árlega ferðablað um Vesturland út. Útgefandi er Skessuhorn. Það nefnist „Travel West Iceland 2017-2018 – Ferðast um Vesturland“ og er gefið út á ensku og íslensku. Ljósmyndir og kort af einstökum svæðum og þéttbýlisstöðum prýða blaðið og eru auglýsendur í hverjum efniskafla staðsettir á kort eftir númerum. Blaðið er…Lesa meira

true

Eyjamenn sigruðu Víking í Ólafsvík

Fjórða umferð Pepsideildar karla hófst í gær í Ólafsvík með leik Víkings og Eyjamanna. Fyrir leikinn höfðu bæði lið aðeins unnið einn leik það sem af er móti. Leikurinn var bragðdaufur og fátt var um fína drætti en baráttan þó mikil. Leiknum lauk með nokkuð öruggum 3-0 sigri Eyjamanna sem með sigrinum lyftu sér upp…Lesa meira

true

Sóttu vélarvana rækjubát

Um klukkan 7:30 í gærmorgun barst björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ útkall þar sem beðið var um að sækja togbátinn Dag SK-17 sem gerður er út á rækju á Breiðarfirði af Dögun á Sauðárkróki. Dagur er 363 brúttótonna skip og var hann staðsettur níu sjómílur norðvestur af Rifi þegar hann varð vélarvana. Veður var með besta…Lesa meira

true

Viðbragðsaðilar munu alltaf að hluta koma úr röðum sjálfsboðaliða

Spurningunni; Er viðbragðskerfið á Íslandi sprungið vegna fjölgunar ferðamanna, var reynt að svara á ráðstefnu sem haldin var á Akureyri um síðustu helgi sem m.a. Landsbjörg og Háskólinn á Akureyri stóðu fyrir. Fyrr rétt um sjö árum var fjöldi ferðamanna sem til landsins kom innan við hálf milljón en áætlaður fjöldi á þessu ári er…Lesa meira

true

Lífland innkallar áburð

Lífland hefur innkallað áburðartegundina LÍF 21-6-9,5+Se, vegna of hás kadmíumsinnihalds. Í tilkynningu Matvælastofnunar kemur fram að kadmíum mældist 71 mg/kg fosfórs samkvæmt niðurstöðum efnagreininga, en kadmíum má mest vera 50 mg/kg fosfórs. Einungis eru komnar niðurstöður úr efnamælinum tveggja áburðartegunda og reyndist hin tegundin LÍF 20,6-11-9+Se í lagi. Um óleyfilega vöru er að ræða og…Lesa meira

true

Landsbjörg kaus sér nýja stjórn

Landsþing Slysavarnafélagins Landsbjargar fór fram á Akureyri um helgina. Alls voru um sex hundruð félagar Landsbjargar staddir á Akureyri um helgina en auk hefðbundinna þingstarfa fóru fram björgunarleikar félagsins þar sem att er kappi í gamni og alvöru í ýmsum björgunarstörfum. Má nefna fjallabjörgun, skyndihjálp og að bakka gamalli dráttarvél með kerru. Á þinginu var…Lesa meira

true

Áin full af límkenndum leir

Óhætt er að segja að Andakílsá í Borgarfirði hafi farið illa út úr því þegar hleypt var í síðustu viku þúsundum rúmmetra af illa lyktandi leirkenndu setlagi úr botni uppistöðulóns Andakílsvirkjunar. Á meðfylgandi mynd er veiðistaður 4 í ánni, einn fengsælasti veiðistaður árinnar. Hylurinn sem alla jafnan er djúpur þannig að ekki sést til botns,…Lesa meira

true

Hæstiréttur staðfestir kröfu um skaðabætur Gæðakokka gagnvart Matvælastofnun

Síðastliðinn fimmtudag kvað Hæstiréttur upp dóm í máli Kræsinga ehf., áður Gæðakokka, gegn Matvælstofnun. Þar er viðurkennd skaðabótaskylda Matvælastofnunar vegna tilkynningar sem birt var á heimasíðu stofnunarinnar 27. febrúar 2013 og varðaði framleiðslu fyrirtækisins í hinu þekkta kjötlokumáli. Matvælastofnun var jafnframt gert að greiða 900.000 krónur í málskostnað. Í frétt Matvælastofnunar á sínum tíma var…Lesa meira

true

Sauðburði að ljúka hjá Grundarbændum

Þegar ljósmyndari Skessuhorns átti leið um Skorradal í blíðviðrinu í gær sá hann til feðganna á Grund þar sem þeir voru úti á túni, ofan við bæinn. Með járnkarl og skóflu að vopni ásamt ámoksturstækjum á dráttarvél voru þeir að losa grjót upp úr flagi sem til stendur að vinna upp og sá í fyrir…Lesa meira