Fréttir

true

Láki Tours í útrás til Hólmavíkur

Hvalaskoðunarfyrirtækið Láki Tours í Grundarfirði mun vera með hvalaskoðun frá Hólmavík á Ströndum í sumar. Ferðirnar hefjast 15. júní næstkomandi og mun heimamaðurinn Már Ólafsson verða skipstjóri. Láki II mun sigla um Steingrímsfjörð og nágrenni en mjög mikið er af hnúfubak á svæðinu. Steingrímsfjörður er þekktur fyrir mikið hvala- og fuglalíf og mikla náttúrufegurð. Fyrir…Lesa meira

true

Bongóblíða í kortunum

Veðurstofan spáir hæglætisveðri og hátt í tuttugu stiga hita um helgina. Ekkert meira um það, nú er bara að njóta veðursins kæru landsmenn.Lesa meira

true

Þúsundum rúmmetra af aur hleypt út í ána

Meðfylgjandi myndir tók Guðrún Guðmundsdóttir í gær við uppistöðulón Andakílsvirkjunar. Þar er búið að hleypa vatni úr uppistöðulóni virkunarinnar og þúsundum rúmmetrum af aur hleypt út. Eins og kemur fram í frétt Skessuhorn.is fyrr í dag lét Orka náttúrunnar tæma lónið og við það gróf áin sig niður og tók með sér þúsundir rúmmetra af…Lesa meira

true

Spinneræði ríður yfir landið – nú eru leikföngin fáanleg í KBB

Blaðamaður Skessuhorns var staddur í Borgarnesi í gær og hitti þar Jómund Hjörleifsson í Kaupfélagi Borgfirðinga, sem lék sér að svokölluðum spinner.  Spinnerar eru nýjasta æðið sem gripið hefur um sig hér á landi meðal yngri kynslóðarinnar, sem og víða um lönd. Spinnerar eru leikföng sem virka þannig að haldið er um miðju leikfangsins og…Lesa meira

true

Líkur taldar á að meiriháttar tjón hafi verið unnið á lífríki Andakílsár

Útlit er fyrir að Orka náttúrunnar, eigandi Andakílsvirkjunar, hafi unnið stórtjón á lífríki Andakílsár fyrr í þessari viku þegar hleypt var gríðarlegu magni af aur og uppsöfnuðum setlögum úr uppistöðulóni ofan virkjunarinnar og niður í ána. Eðlilegt hefði verið að mokað hefði verið upp úr lóninu og efninu ekið burtu, en það var ekki gert.…Lesa meira

true

Víkingar luku leik í bikarnum í gær

Í vikunni fór fram 32-liða í Borgunarbikar karla í knattspyrnu. Aðeins ein viðureign í 32-liða úrslitum var milli liða í efstu deild en Víkingur Ólafsvík fékk heimaleik gegn Valsmönnum og var sá leikur leikinn í gær. Það var ljóst fyrir leikinn að Víkingum beið erfitt verkefni í ljósi þess að Valsmenn hafa verið það lið…Lesa meira

true

Skoðuðu húsakynni skólans

Starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands framkvæmdu í apríl síðastliðnum skoðun á húsakynnum Grunnskólans í Stykkishólmi að beiðni skipulags- og byggingafulltrúa Stykkishólmsbæjar og skólastjóra. Fram kom að kvartanir hefðu borist frá nemendum um óþægindi og vanlínan í ákveðnum kennslustofum í skólanum. Jafnvel lék grunur á um að mygla gæti valdið þessum óþægindum. Kennslustofur 7. og 9. bekkjar skólans…Lesa meira

true

Talsvert um umferðarlagabrot

Samtals voru 42 ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Hraðabrot voru þó fleiri, því þá eru ótaldir þeir sem mældir voru af hraðamyndavélum í umdæminu. Sá sem hraðast ók í vikunni var mældur á 137 km/klst á svæði þar sem hámarksaksturshraði er 90 km/klst. Einn ökumaður var…Lesa meira

true

Akraborg heimilað að taka yfir Ægir sjávarfang í Ólafsvík

Samkeppniseftirlitið úrskurðaði í síðustu viku vegna væntanlegrar yfirtöku lagmetisfyrirtækisins Akraborgar ehf. á Akranesi á Ægi sjávarfangi hf. í Ólafsvík. Fyrirtækin eru láréttir samkeppnisaðilar, eins og segir í úrskurði stofnunarinnar, og starfa bæði við það sama, þ.e. að kaupa þorsklifur, sjóða hana niður og selja, aðallega erlendis, til manneldis. Með samruna þessum tekur Akraborg yfir rekstur…Lesa meira

true

Leitað að nafni á háhyrningskálf

Þann 20. nóvember síðastliðinn urðu vísindamenn Orca Guardians Iceland varir við nýfæddan háhyrningskálf við strendur Snæfellsness. Þetta var afkvæmi kvendýrs sem ber merkið SN200 og var merkt við strendur Íslands. Dýrin dvelja við strendur landsins yfir vetrartímann en færa sig til Skotlands og Hjaltlandseyja á vorin og yfir sumartímann. Því hafa vísindamennirnir Orca Guardians Iceland…Lesa meira