Fréttir

true

Yfir 50 þúsund veglyklar í umferð

Umferð í Hvalfjarðargöngunum í apríl var 9,6% meiri en í sama mánuði í fyrra og um 9,3% meiri fyrstu fjóra mánuði ársins. Hver og einn mánuður það sem af er þessu ári er metmánuður í umferð í Hvalfjarðargöngum frá því þau voru opnuð sumarið 1998. Á hringveginum jókst umferð í apríl um 12% miðað við…Lesa meira

true

Fjölmenni á árlegri sýningu í Brákarey

Síðastliðinn laugardag fór árleg sýning Fornbílafjelags Borgarfjarðar og Bifhjólafjelagsins Raftanna fram í Borgarnesi. Veður var milt en skýjað. Þar var til sýnis gríðarlegur fjöldi bíla, mótorhjóla og annarra ökutækja. Gesti dreif víða að og mátti meðal annars sjá nokkur hundruð vélhjól sem gestir höfðu komið akandi á sumir hverjir um langan veg. Sýningarsvæðið var innan-…Lesa meira

true

Ótrúleg endurkoma Skagamanna

ÍA sigraði Fram í ótrúlegum leik í Borgunarbikar karla í knattspyrnu þegar liðin mættust á Akranesvelli í gær. Gestirnir leiddu 3-1 þegar aðeins þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Upphófust þá hreint út sagt ótrúlegar lokamínútur þar sem Skagamenn skoruðu þrjú mörk á fimm mínútum og tryggðu sér 4-3 sigur. Framarar komust yfir strax…Lesa meira

true

Telja góðan samning í höfn fyrir starfsmenn Elkem

Verkalýðsfélag Akraness hefur náð nýjum kjarasamningi við Elkem Ísland fyrir hönd starfmanna fyrirtækisins. Samningurinn er að mati Vilhjálms Birgissonar formanns VLFA mjög góður og í anda þess samnings sem gerður var fyrir starfsmenn Norðuráls. Ofngæslumenn eru til dæmis að hækka um 9% í heildarlaunum á fyrsta ári samningstímans. Heildarlaun ofngæslumanns með tíu ára starfsreynslu voru…Lesa meira

true

Sendir HB Granda kveðju með Verkakonublús

Fiskvinnslu- og söngkonan Jónína Björg Magnúsdóttir sló í gegn í fyrra með laginu „Svei´attan“ þar sem hún söng frumsaminn texta sem var hvöss ádeila á eigendur HB Granda. Textann samdi Nína eftir að starfsfólk HB Granda hafði fengið íspinna sem umbun í stað launahækkunar eða bónusa. Nína hefur nú samið nýjan texta og ætlar í…Lesa meira

true

Vetrarfærð á fjallvegum norðan heiða

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að vetrarfærð, snjóþekja, krapi og hálkublettir sé nú á nokkrum vegum á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi en unnið er að hreinsun. Samkvæmt sjálfvirkum myndavélum á fjallvegum, sem sjá má hér neðar á síðunni, er þokkaleg færð á fjallvegum á Snæfellsnesi og í Dölum. Hins vegar er alls ekkert skyggni…Lesa meira

true

“Ekki sjálfgefið að unglingar finni sig í nýjum skóla“

„Það er alltaf talsvert um að fólk kvarti yfir því sem því finnst aðfinnsluvert en gleymir jafnvel að þakka fyrir það sem vel er gert og senda hlýja strauma. Ég vil því gjarnan koma kæru þakklæti á framfæri við Brekkubæjarskóla á Akranesi; til Arnbjargar Stefánsdóttur skólastjóra og kennaranna Særúnar Gestsdóttur og Þórgunnar Óttarsdóttur sem hafa…Lesa meira

true

Danssýning hjá Grunnskóla Grundarfjarðar

Nemendur í Grunnskóla Grundarfjarðar voru á dansnámskeiði alla síðustu viku og var foreldrum og aðstandendum nemenda boðið á stórsýningu í dansi í íþróttahúsi Grundarjarðar í vikulok. Það dönsuðu nemendur af hjartans lyst og sýndu árangur erfiðisins. Í lokin var hið svokallaða „dab“ brúkað undir dynjandi lófaklappi.Lesa meira

true

Frumsýna nýjan og kraftmeiri Honda Civic

Nýr og kraftmeiri Honda Civic verður frumsýndur hjá Bílveri á Akranesi á laugardaginn klukkan 11-17. „Nýi Honda Civic er allt í senn sportlegur og kraftmikill, glæsilegur á götu, rúmgóður og lipur í akstri. Honda Civic hefur löngum verið þekktur sem kraftmesti bíllinn í sínum flokki og nýjasta útgáfan sem verður frumsýnd á morgun heldur í…Lesa meira

true

Þrjár konur af Vesturlandi í landsliðshópnum

Búið er að velja þá tólf leikmenn sem munu skipa landslið Íslands, hjá konum og körlum, á Smáþjóðaleikunum sem fara fram í San Marínó dagana 30. maí til 3. júní. Þetta eru 17. leikar smáríkja Evrópu sem haldnir eru annað hvert ár. Síðustu leikar voru haldnir hér á landi fyrir tveimur árum þar sem bæði…Lesa meira