Fréttir

true

Héldu ungmennaveislu í Hjálmakletti

Í gærkvöldi kom ungt fólk úr Borgarbyggð saman og hélt svokallaða ungmennaveislu í Hjálmakletti. Það var Ungmennaráð Borgarbyggðar sem boðaði til samkomunnar fyrir fólk á aldrinum 16-25 ára. Í boði var fræðsla frá völvunni, bingó, umræður um hvernig er að vera ungmenni í sveitarfélaginu og þá gæddu gestir sér á pizzum. Ungmennaráðið samanstendur af blönduðum…Lesa meira

true

Bæjarsjóður Stykkishólms skilaði hagnaði og skuldir lækka

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur afgreitt ársreikning fyrir bæjarsjóð og B-hluta fyrirtæki bæjarins vegna ársins 2016. Rekstur sveitarfélagsins skilaði hagnaði og er í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir að svo verði einnig á yfirstandandi ári. „Hefur því skilað sér það starf hagræðingar en um leið uppbyggingar og  framfarasóknar í bæjarfélaginu sem sett var af stað strax í byrjun…Lesa meira

true

Seðlabankinn lækkaði stýrivexti lítilsháttar

Seðlabanki Íslands tilkynnti í morgun um lækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, það er vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða nú 4,75% í stað 5% áður. Athygli vekur hversu lítil lækkun verður á stýrivöxtum nú enda standa íslenskir lántakendur undir hærri vöxtum en gerist og gengur í hinum vestræna heimi. Í rökstuðningi peningastefnunefndar…Lesa meira

true

Sauðfé tekið úr vörslu eiganda

Í lok síðustu viku svipti Matvælastofnun umráðamann sauðfjár á Suðurlandi öllum kindum sínum. „Ástæða vörslusviptingar er sinnuleysi án þess að kröfur stofnunarinnar væru virtar. Í lögum um velferð dýra segir að umráðamönnum dýra beri að tryggja dýrum góða umönnun, þ.m.t. að sjá til þess að þörfum dýranna sé sinnt að jafnaði einu sinni á dag,“…Lesa meira

true

Íbúafundur annað kvöld um heilsueflandi samfélag

Boðað er til íbúafundar um heilsueflandi samfélag í Hjálmakletti í Borgarnesi annað kvöld, fimmtudaginn 18. maí kl. 20:00. Tilefni fundarins er að Borgarbyggð er að verða heilsueflandi samfélag. Dagskrá fundarins hefst á erindi Írisar Grönfeldt „Allt til alls – í heimabyggð“. Næst kveður Magnús Scheving sér hljóðs og flytur erindið „Áfram Borgarbyggð!“ Að framsögum loknum…Lesa meira

true

„Ástríðan vex og áhuginn verður meiri með hverjum deginum“

„Ég er í strætó á leið í skólann hér í Boston. Þetta er eini rólegi tíminn að deginum og um að gera að nýta hann,“ segir Skagamaðurinn Þorleifur Gaukur Davíðsson munnhörpuleikari þegar Skessuhorn sló á þráðinn til hans í síðustu viku og falaðist eftir viðtali. „Ég er að læra á munnhörpuna í Berklee School of…Lesa meira

true

ÍA semur við fjóra efnilega leikmenn

Knattspyrnufélag ÍA hefur gengið frá samningum við fjóra unga og efnilega leikmenn. Þetta eru þær Ásta María Búadóttir, Erla Karitas Jóhannesdóttir, Katrín María Óskarsdóttir og Sigrún Eva Sigurðardóttir. Allar voru þær að skrifa undir sinn fyrsta samning við félagið. Þær leika allar með 3. flokki en stigu sín fyrstu skref með meistaraflokki á nýliðnu undirbúningstímabili.…Lesa meira

true

Kári féll úr bikarnum

Káramenn hafa lokið keppni í Borgunarbikar karla í knattspyrnu að þessu sinni. Þeir mættu 1. deildar liði Selfoss í 32 liða úrslitum í gær og máttu sætta sig við 3-2 tap. Alfi Conteh Lacalle kom Selfyssingum yfir á 13. mínútu og tveimur mínútum síðar bæti James Mack við öðru marki heimamanna. Andri Júlíusson minnkaði muninn…Lesa meira

true

Opnar vinnustofur í sumar

Í gömlu Glerhöllinni við Ægisbraut á Akranesi er nú rekið samvinnurýmið Coworking Akranes. Þar hafa þær Sara Hjördís Blöndal, Sara Björk Hauksdóttir, Tinna Royal og Aldís Petra Sigurðardóttir komið sér vel fyrir með vinnustofur sínar, en allar eru þær listakonur. Nýverið ákváðu þær að opna vinnustofur sínar, við góðar viðtökur. Í sumar verður áframhald á…Lesa meira

true

„Viljum byggja fyrirtækið upp með sem bestum hætti“

Eðalfiskur ehf. er eitt af stærri fyrirtækjum í Borgarnesi. Þar starfa um 20 manns við vinnslu á afurðum úr laxi og heildarframleiðsla fyrirtækisins á síðasta ári nam tæplega 1100 tonnum. Fyrirtækið flutti um miðjan aprílmánuð í nýlegt tvö þúsund fermetra húsnæði að Vallarási 7-9 en hafði áður verið að Sólbakka 4. Starfsemin var löngu búin…Lesa meira