Fréttir

true

Svifnökkvi frumsýndur á stórsýningu í Brákarey

Nýjasta farartækið í flóru landsmanna er á meðfylgjandi mynd, sveipað dúk og dulúð, en á kerru. Þetta er svifnökkvi sem Arinbjörn Kúld eigandi Íslandsnökkva fékk til landsins frá Bretlandi nú í vikunni. Arinbjörn er nú á leiðinni frá Akureyri og í Borgarnes þar sem nökkvinn verður frumsýndur á morgun á stórsýningu Raftanna og Fornbílafjelags Borgarfjarðar.…Lesa meira

true

Skagakonur hefja leik í kvöld

ÍA leikur sinn fyrsta leik í 1. deild kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar liðið tekur á móti Tindastóli í Akraneshöllinni. Upphaflega stóð til að leikurinn færi fram á Akranesvelli en vegna slæmrar veðurspár var hann færður undir þak. Rætist hins vegar úr veðrinu getur dómari leiksins tekið ákvörðun um að færa leikinn út að nýju.…Lesa meira

true

Aðalfundur VLFA haldinn í skugga uppsagna

Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness var haldinn síðdegis í gær, sama dag og 86 félagsmenn fengu boð um væntanlegar uppsagnir starfa í fiskvinnslu HB Granda á Akranesi. Eðli málsins samkvæmt var stemningin á fundinum því í samræmi við það. Af þeim sökum féll í skuggann að ástæða er fyrir verkalýðsfélagið að gleðjast þar sem fjárhagsleg og félagsleg…Lesa meira

true

Samstarf vestlenskra slökkviliða reyndist vel

Eldur kom upp í sinu í vegarkanti skammt sunnan við Dal í Eyja- og Miklaholtshreppi um nónbil í gær. Töluvert hvasst var á svæðinu og náði eldurinn fljótt að breiðast út enda jörð þurr. Um tíma var óttast að eldurinn kæmist að mannvirkjum á Vegamótum og gróðrarstöðinni á Lágafelli. Bjarni Kristinn Þorsteinsson slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð…Lesa meira

true

Ásókn í starf skrifstofustjóra

Sveitarfélaginu Hvalfjarðarsveit bárust 19 umsóknir um starf skrifstofustjóra sem nýverið var auglýst laust til umsóknar. Þrír einstaklingar drógu umsóknir sínar til baka. Umsækjendur um starf skrifstofustjóra hjá Hvalfjarðarsveit eru: Árni Þorsteinsson, Brynjar Sigurðsson, Börkur Ingvarsson, Davíð Kristjón Jónsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Halldór Jónsson, Helga Karlsdóttir, Ingibjörg María Halldórsdóttir, Ingunn Sigurgeirsdóttir, Jón Sigurður Snorri Bergsson, Linda Björk…Lesa meira

true

Sömdu og færðu upp leikrit um kynjahlutverk

Í vikunni var hefðbundið skólahald í Fjölbrautaskóla Vesturlands brotið upp á samnefndum uppbrotsdögum. Góð reynsla er komin á þetta fyrirkomulag. Í Uppbrotsviku vinna nemendur fjölbreytt lokaverkefni þvert á fög og áfanga. Einn hópurinn tók sig til og samdi leikrit um hlutverk kynjanna með leiðsögn Maríu Kúld kennara í kynja- og uppeldisfræði. Á sýningu var svo…Lesa meira

true

Keppt í torfæru á Hellu

Á morgun laugardag klukkan 11 halda Flugbjörgunarsveitin á Hellu og akstursíþróttanefnd Heklu fyrstu umferð Íslandmótsins í torfæru. Keppnin fer fram á akstursíþróttasvæði FBSH við Gunnarsholtsveg rétt austan Hellu líkt og undanfarin 44 ár. „Undanfarin ár hefur keppnin verið vel sótt, keppendur hafa sýnt listir og gríðarleg stemning myndast. Torfærukeppni þessi er skemmtun fyrir alla fjölskylduna…Lesa meira

true

Breyta skipulagi og minnka byggingarmagn við Brákarsund

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að ráðast í breytingu á deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð á óbyggðu svæði neðst við Brákarsund í Borgarnesi. Minnka á byggingarmagn og leiðrétta um leið misræmi sem komið hefur í ljós að er milli gildandi skipulags og kortasjár Skipulagsstofnunar varðandi númer lóða. Sveitarstjórn samþykkti að úthluta tveimur byggingalóðum þar…Lesa meira

true

Stefnir í stórsýningu í Borgarnesi á morgun

„Það stefnir í góða sýningu í Brákarey og mikinn fjölda þátttakenda. Veðurspáin gerir ráð fyrir tveggja stafa tölu. Við erum því full tilhlökkunar fyrir morgundeginum,“ segir Unnar Bjartmarsson í samtali við Skessuhorn. Hann er í forsvari fyrir hina árlegu stórsýningu Bifhjólafjelagsins Raftanna og Fornbílafjelags Borgarfjarðar sem haldin verður í Brákarey í Borgarnesi laugardaginn 13. maí…Lesa meira