Fréttir

true

Straumleysi í Reykholtsdal á mánudaginn

Rafmagnslaust verður í Reykholtsdal í Borgarfirði mánudaginn 8. maí frá klukkan 15:00-15:30 vegna tengivinnu við háspennustreng Rariki. Straumlaust verður, samkvæmt tilkynningu frá Rarik, á svæðinu frá Deildartunga til hreinsistöðvar í Reykholti.  Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.Lesa meira

true

Tíundu bekkingar í starfskynningum á vegum rótarýklúbbsins

Rótaryklúbbur Borgarness hefur um árabil beitt sér fyrir því að nemendur í tíunda bekk grunnskólanna í héraðinu heimsæki fyrirtæki og vinnustaði til að kynnast því sem þar fer fram. Þekkt eru dæmi þess að nemendur sem þannig hafi fengið tækifæri til að kynnast ólíkum vinnustöðum hafi beinlínis heillast af því sem þar fer fram og…Lesa meira

true

„Þurfum að vera tólfti maðurinn á vellinum“

Á komandi sumri leikur karlalið ÍA í Pepsi deild karla og konurnar í 1. deildinni. Karlarnir hófu leik sunnudaginn 30. apríl þegar liðið mætti Íslandsmeisturum FH á Akranesvelli. Fyrsti leikur kvennaliðsins er föstudaginn 12. maí þegar ÍA mætir Tindastóli, einnig á Akranesvelli. Stuðningsmenn ÍA bíða knattspyrnusumarsins með eftirvæntingu og verður Sigrún Ríkharðsdóttir að teljast með…Lesa meira

true

„Keppum um að verða stuðningsmenn ársins í annað sinn“

Víkingur Ólafsvík leikur nú í þriðja skiptið á fimm árum í Pepsi deild karla og komandi sumar verður það fyrsta í sögu félagsins sem Víkingur er ekki nýliði í efstu deild. Félagið sendir enn fremur lið til keppni í 1. deild kvenna, en aðeins örfá ár eru síðan liðinu var komið á fót. Meðal dyggustu…Lesa meira

true

Fuglavernd kynnir sér leyndardóma Borgarfjarðar og Mýra

Félagið Fuglavernd er nú með í undirbúningi skoðunarferð um Borgarfjörð og Grunnafjörð. Jóhann Óli Hilmarsson formaður félagsins verður leiðsögumaður í þessari dagsferð. Lagt verður upp frá Hverfisgötu 105 í Reykjavík klukkan 9 að morgni laugardagsins 13. maí og áætlað að ferðin taki níu tíma. Einnig verður hægt að koma um borð í rútuna í Borgarfirði.…Lesa meira

true

Lögregla hafði afskipti af fólki sem myndaði hross með dróna

Lögreglumenn af Vesturlandi, sem nýverið voru á leiðinni í verkefni á Snæfellsnesi, komu að erlendum ferðamönnum þar sem þeir voru að mynda hrossastóð með dróna. „Voru hestarnir á hlaupum undan drónanum. Gátu lögreglumennirnir ekki annað en stoppað hjá fólkinu og gert þeim grein fyrir því að þessi háttsemi væri ekki í lagi. Lofuðu ferðamennirnir öllu…Lesa meira

true

Fjárfestar hætta við hótelbyggingu á Akranesi

Boðuð hækkun ríkisstjórnarinnar á virðisaukaskatti í gistiþjónustu á næsta ári úr 11 í 24% er þegar farin að hafa mikil áhrif á fjárfestingar í greininni. Fjárfestar sem höfðu í undirbúningi hótelbyggingu á Akranesi hafa nú dregið til baka áætlanir sínar. Þetta upplýsir Eggert Herbertsson framkvæmdastjóri sem rekur Stay-Akranes, gistiþjónustu á þremur stöðum á Akranesi. Viðræður…Lesa meira

true

Mikið rek og færið eins og þvottasnúrur

Um fimmtíu bátar af ýmsum stærðum eru nú að veiðum á Breiðafirði, á þriðja degi strandveiðitímabilsins. Tæplega 400 bátar hafa nú virkjan strandveiðileyfi sín þegar öll veiðisvæði eru talin. Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns er í þeim hópi en hann rær á bátnum Sæfinni HF frá Ólafsvík. Fonsi var nú á tíunda tímanum í morgun staddur…Lesa meira

true

Stofna Fjarskiptafélag Reykhólahrepps

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á síðasta fundi sínum stofnun fyrirtækis um rekstur ljósleiðara. Fyrirtækið mun heita Fjarskiptafélag Reykhólahrepps og verður alfarið í eigi sveitarfélagsins. Ástæða þess að sveitarfélagið ræðst í stofnun fyrirtækisins er sú að engin fjarskiptafélög sýndu því áhuga að koma að uppbyggingu ljósleiðarakerfis í sveitarfélaginu þegar auglýst var eftir slíku. „Þar sem sveitarstjórn Reykhólahrepps…Lesa meira

true

Undirbúa ferðaþjónustuverkefni tengt söguöldinni

Um þessar mundir er í undibúningi ferðaþjónustuverkefni sem byggir á sagnaarfi sögualdarinnar í Dölum. Verkefnið er ekki fullmótað enn sem komið er, en áætlað er að það muni fela í sér sögualdarsýningu sem sett verður upp í Leifsbúð í Búðardal. Fjármögnun verkefnisins er í fullum gangi. Til dæmis fékkst styrkur til verkefnisins að verðmæti ein…Lesa meira