
Stungið sér til sunds. Ljósm. SA
Keppt í bringusundi og skriðsundi á Landsbankamóti
Í gær fór Landsbankamót Sundfélags Akraness fram í Bjarnalaug. Þar ríkti mikið fjör og frábær stemning. Þátttakendur stóðu sig með stakri prýði en alls tóku 40 krakkar þátt á mótinu, á aldrinum 6–12 ára. Keppt var í tveimur sundgreinum; bringusundi og skriðsundi.