
Anna Soffía Lárusdóttir var atkvæðamest heimakvenna í leiknum. Ljósm. Bæring Nói
Snæfell með annan sigur sinn í fyrstu deildinni
Snæfell lék á laugardaginn sinn annan leik í fyrstu deild körfuknattleiksins þegar lið Vestra kom í heimsókn í Stykkishólm. Snæfellingar höfðu frumkvæðið í leiknum nánast allan tímann. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 23:13 Snæfellingum í vil. Vestrastúlkum tókst aðeins að klóra í bakkann í öðrum leikhluta og staðan í hálfleik var staðan 35-30. Síðari hluti leiksins var svo Snæfellinga og lauk leiknum með sigri þeirra 87:62.