
Valentin Fels Camilleri kynnti starfið framundan á afmælis æfingu í gær. Ljósmyndir: mm
Tilhlökkun þegar æfingar hófust hjá Brimi BJJ
Það var margt um manninn á loftinu á Smiðjuvöllum 17 á Akranesi í gærkvöldi. Þá fór þar fram fyrsta æfing haustsins hjá Brimi BJJ undir stjórn Valentin Fels Camilleri. Valentin kennir þar bardagaíþróttina brasilískt jiu-jitsu og var jafnframt haldið upp á fimm ára afmæli stöðvarinnar með köku að lokinni æfingu. Um fjörutíu iðkendur mættu á þessa fyrstu æfingu. Í haust verður m.a. boðið upp á byrjendanámskeið í jiu-jitsu fyrir 16 ára og eldri og Kids jiu-jitsu námskeið fyrir 8-13 ára.