
Elizabeth Bueckers í baráttu við leikmann Gróttu. Ljósm. Jón Gautur
Grótta hafði betur gegn ÍA
ÍA og Grótta mættust í 14. umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu í Akraneshöllinni í gærkvöldi. Lið ÍA mætti mjög ákveðið til leiks og strax á 4. mínútu náði Elizabeth Bueckers forystunni fyrir ÍA. Það var svo ekki fyrr en á 74. mínútu sem gestirnir svöruðu fyrir sig þegar Hulda Ösp Ágústsdóttir skoraði og jafnaði metin. Saga Líf Sigurðardóttir sá svo um að stigin þrjú sem í boði voru færu á Seltjarnarnes þegar hún skoraði annað mark Gróttu á 86. mínútu leiksins.