: Íslenska landsliðið þakkaði áhorfendum eftir leikinn í gær. Ljósm. tfk

Ísland á leið heim af EM eftir leik við Noreg á fimmtudaginn

Eftir að úrslit í öðrum leik íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu á EM í Sviss lágu fyrir í gærkvöldi, er ljóst að liðið á enga möguleika á að komast í átta liða úrslit á mótinu. Einn leikur er eftir á fimmtudaginn, á móti Noregi, en úrslitin skipta engu máli fyrir Ísland, annað en upp á stoltið. Noregur er með fullt hús stiga í riðlinum og það verða Finnland og Sviss sem berjast um hitt sætið úr riðlinum. Ísland tapaði í gær 2:0 fyrir Sviss eftir mikinn baráttuleik, en fyrri leiknum töpuðu stelpurnar 1:0 gegn Finnlandi. Tómas Freyr Kristjánsson, okkar maður í Sviss, var á leikjunum og sendi meðfylgjandi myndir eftir svekkjandi tap í gær.

Ísland á leið heim af EM eftir leik við Noreg á fimmtudaginn - Skessuhorn