
Markaskorarinn Vuk Oskar og Viktor Jónsson eigast við í leiknum. Ljósm. Fotbolti.net
ÍA vermir áfram botnsætið eftir tap gegn Fram
Leikmenn ÍA sóttu ekki stig gegn Fram þegar liðin mættust í 14. umferð Bestu-deildarinnar í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í sumarblíðu Írskra daga á Jaðarsbökkum og áhorfendamet var slegið þegar 1.144 mættu til þess að fylgjast með leiknum.