Íþróttir
Leikmenn Víkings fagna jöfnunarmarki Kwame Quee. Ljósm. tfk

Káramenn kjöldregnir en Víkingur náði jafntefli

Lið Gróttu sótti Víking í Ólafsvík heim á laugardaginn í leik í 2. deild karla í knattspyrnu. Grótta náði forystu á 21. mínútu með marki Valdimars Daða Sævarssonar. Forysta Gróttu jókst á 50. mínútu þegar Björgvin Brimi Andrésson bætti öðru marki liðsins við. Luis Alberto Ocerin og Kwame Quee náðu að tryggja Víkingi eitt stig úr leiknum með mörkum á 63. og 74. mínútu. Brynjar Kristmundsson þjálfari Víkings fékk rauða spjaldið á 46. mínútu og verður því væntanlega í leikbanni í næsta leik.