
Byrjunarlið Kára gegn KFA í Akraneshöllinni. Ljósm. Kári
Ólíkt gengi Vesturlandsliðanna gegn Austurlandsliðum
Leikmenn Kára á Akranesi komust á sigurbraut þegar áttunda umferð 2. deildar fór fram á laugardaginn. Káramenn mættu þá liði Knattspyrnufélagi Austurlands (KFA) í Akraneshöllinni. Það voru þó leikmenn KFA sem áttu fyrsta markið þegar Bissi Da Silva skoraði strax á 3. mínútu. Heimamenn náðu yfirhöndinni með mörkum Mikaels Hrafns Helgasonar á 26. mínútu og Barkar Barnharðs Sigmundssonar á 38. mínútu. KFA náði að jafna metin á 62. mínútu þegar Marteinn Már Sverrisson skoraði. Það var svo Marinó Hilmar Aðalgeirsson sem innsiglaði sigur Káramanna með marki á 73. mínútu.