Íþróttir
Sprett úr spori á laugardaginn. Ljósmyndir: af

Íslandsmótið í motocrossi hófst á laugardaginn utan Ennis

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í motocrossi fór fram á vegum Motocrossklúbbs Snæfellsbæjar á laugardaginn. Klúbburinn hefur lagt nótt við dag við undirbúning fyrir mótið. Brautin utan Ennis var endurbætt og var í frábæru ástandi, bæði fyrir ökumenn og áhorfendur. 38 keppendur mættu til leiks og keppt var í nokkrum flokkum. Veður var hið besta og kunnu keppendur og áhorfendur sem voru fjölmargir vel að meta það. Næsta keppni fer svo fram á Akranesi laugardaginn 28. júní.