Íþróttir
Lewandowski í þann mund að munda skotfótinn og sundlaugargestir fylgjast spenntir með. Ljósm. af

Stórtap hjá Reyni H. gegn Létti í fyrsta leik

Reynir Hellissandi tók á móti liði Léttis í fyrstu umferð A riðils 5. deildar karla í knattspyrnu í gær og var viðureignin á Ólafsvíkurvelli. Það er óhætt að segja að það hafi verið létt yfir leikmönnum Léttis í leiknum en að sama skapi reyndi á lið Reynis því það rigndi yfir þá mörkunum í góða veðrinu sem var skrýtið.