
Hrepptu gull á öldungamóti í blaki
Öldungamótið í blaki fór fram í Kópavogi fyrstu þrjá dagana í maí. Þar öttu kappi mörg virðulegustu blaklið landsins en mótið er ætlað heldri iðkendum eins og nafnið gefur til kynna. Af þveim voru þrjú kvennalið af Snæfellsnesi og tvö frá Akranesi. Liðin stóðu sig vel og var gleðin í fyrirrúmi þó að keppnisskapið hafi að sjálfsögðu fylgt með líka. Annað Akranesliðið hafnaði í fyrsta sæti í sínum flokki. Það var þannig skipað: Laima Linares Hurtado, Erna Björg Guðlaugsdóttir, Sigríður Helgadóttir, Elsa Jóna Björnsdóttir, Jasmina Vajzovic, Anna Bjarnadóttir, Álfheiður Ágústsdóttir og Sædís Sigurmundsdóttir.