
Erna Björt skoraði fyrir ÍA úr vítaspyrnu á móti Fylki en það dugði ekki til. Ljósm. vaks
Tap hjá Skagakonum í fyrsta leik
Fylkir og ÍA mættust í fyrstu umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var spilað á Tekk-vellinum í Árbænum. Aðstæður voru með besta móti, sólin skein og hitinn um ellefu gráður. Í árlegri spá þjálfara og fyrirliða liðanna í Lengjudeildinni fyrir tímabilið var Skagakonum spáð öðru sæti en liði Fylkis, sem féll úr Bestu deildinni á síðasta tímabili, því fimmta. Keflavík var spáð efsta sætinu en liðum Hauka og Aftureldingar spáð falli.