Íþróttir
Khalyl Waters treður boltanum í leiknum gegn Hamri í gær. Ljósm. Bæring Nói.

Snæfell jafnaði metin gegn Hamri

Snæfell tók á móti Hamri í Hveragerði í gær í fjórða leik liðanna í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta. Fyrir leikinn var Hamar með 2-1 forystu en vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslit. Þéttsetið var í áhorfendastúkunni í Fjárhúsinu, íþróttahúsi Stykkishólms og mikil spenna.