
Fagnað að leikslokum og bikarinn kominn í hús. Ljósm. Kkd ÍA/ Jón Gauti photo
Bikar í hús og taplaust ÍA lið á heimavelli
Það var gríðarleg stemning og stappfullt á pöllunum í íþróttahúsinu á Vesturgötu á Akranesi í gærkvöldi. Þá voru heimamenn í Körfuknattleiksfélagi ÍA að taka á móti Ármanni. Fyrir leikin voru liðin í fyrsta og öðru sæti deildarinnar. ÍA þegar búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn og gat með sigri í þessu síðasta heimaleik sínum á tímabilinu fullkomnað taplaust tímabil á heimavelli.