Íþróttir
Gunni Hó með verðlaunagripina fyrir sigurinn. Ljósm. PFA

Gunni Hó Akranesmeistari í pílu

Síðasta laugardag fór fram Akranesmeistaramót 501 hjá Pílufélagi Akraness og var það haldið í pílusalnum við Vesturgötu. 22 keppendur skráðu sig til leiks, fyrst var leikið í riðlum og síðan var útsláttarkeppni. Það kom fæstum á óvart að í úrslitaleiknum mættust þeir Gunni Hó og Siggi Tomm enda hafa þeir verið framarlega í íþróttinni á Akranesi síðustu ár. Í undanúrslitum lagði Gunni Hó sigurvegara síðasta árs, Stefán Bjarka Ólafsson, og Siggi Tomm vann Andra Þórðarson í hinni viðureigninni.