Íþróttir

Ísland spilar í Póllandi á EuroBasket í haust

Körfuknattleikssambönd Íslands og Póllands hafa náð samkomulagi um að karlalið Íslands spili í Póllandi á EuroBasket í haust og hefur FIBA Europe samþykkt það samkomulag. EuroBasket í haust fer fram í fjórum löndum; Póllandi, Lettlandi, Finnlandi og Kýpur en löndin eru samtals 24 sem keppa á EuroBasket á fjögurra ára fresti. Þessi lönd gátu svo samið við eina þjóð um að vera með þeim í riðli áður en dregið verður í riðla 27. mars. Finnland samdi við Litháen, Lettland við Eistland og Kýpur við Grikkland.

Ísland spilar í Póllandi á EuroBasket í haust - Skessuhorn