
Skagakonur efstar eftir sigur á Gróttu
Leikur ÍA og Gróttu í 3. umferð B deildar kvenna í Lengjubikarnum í knattspyrnu fór fram á föstudagskvöldið og var spilað í Akraneshöllinni. Erla Karitas Jóhannesdóttir skoraði fyrsta mark leiksins á 10. mínútu fyrir ÍA þegar Madison Schwartzenberger átti flotta sendingu inn fyrir vörn Gróttu, varnarmaður náði að senda boltann í átt til markmannsins en Erla Karitas komst á milli, potaði knettinum fram hjá honum og lagði boltann í markið. Staðan 1-0 og fram að hálfleik voru heimakonur mun líklegri að bæta við marki þó færin væru ekki mörg en það kom fimm mínútum fyrir hálfleik. Eftir vel uppfærða sókn sendi nýr leikmaður ÍA, Elizabeth Bueckers, boltann inn fyrir í vítateiginn og þar var Erla Karitas mætt og sendi boltann með vinstri undir markmann Gróttu. Staðan 2-0 í hálfleik og Skagakonur með góð tök á leiknum.