
Frá vinstri: Hinrik Harðarson, Erik Sandberg og Marko Vardic skoruðu gegn Þrótti, Oliver Stefánsson fékk rautt spjald og Guðfinnur Þór Leósson kom inn á í seinni háfleik. Ljósm. vaks
Markaleikur og tvö rauð spjöld í sigri Skagamanna
Þróttur Reykjavík og ÍA áttust við í A deild karla í Lengjubikarnum í knattspyrnu í riðli 1 í gær og var þetta lokaleikur þeirra gulu í riðlinum þetta árið. Eftir sigur Vals á Vestra fyrr um daginn var ljóst að hvorugt liðið átti lengur möguleika á efsta sætinu og sæti í undanúrslitum.