
Jure Boban flýgur framhjá varnarmanni KV. Ljósm. hig
Fimmtán tapleikir hjá Skallagrími
Skallagrímur tók á móti liði KV á föstudaginn í 19. umferð fyrstu deildar karla í körfubolta. Skallagrímur var fyrir leikinn með 8 stig í neðsta sæti deildarinnar en KV var þar rétt fyrir ofan með 12 stig og því var um að ræða gríðarlega mikilvægan leik fyrir bæði lið.