
Jón Gísli Eyland skoraði eitt mark og lagði upp annað gegn Grindavík. Hér í leik á móti Breiðabliki síðasta sumar. Ljósm. gbh
Fyrsti sigur Skagamanna í Lengjubikarnum
ÍA og Grindavík mættust í gærkvöldi í A deild deild karla í Lengjubikarnum í riðli 1 og var leikurinn í Akraneshöllinni. Skagamenn gerðu jafntefli í fyrstu tveimur leikjunum í Lengjubikarnum en Grindvíkingar voru með þrjú stig eftir tvo leiki. Í byrjunarliði gestanna voru þrír fyrrum leikmenn ÍA sem eru allir á láni en það voru þeir Breki Þór Hermannsson, Ármann Ingi Finnbogason og Árni Salvar Heimisson.