Hefja söfnun undirskrifta og hvetja til að Landsbankahúsið verði gert að Ráðhúsi

Í Skessuhorni í dag ritar stjórn Miðbæjarsamtakanna Akratorgs á Akranesi grein þar sem bæjaryfirvöld eru hvött til þess að hefja endurbætur á Landsbankahúsinu við Akratorg og gera húsið að Ráðhúsi. Einnig birta samtökin heilsíðuauglýsingu málinu til stuðnings. Telja samtökin einsýnt að slíkt myndi samhliða því færa aukið líf í annars líflítinn gamla bæjarhluta. Færð eru ýmis rök fyrir málinu.

Í greininni segir að miðbæjarsamtökin hafi oft velt upp þeirri hugmynd að gera húsið að Ráðhúsi en ekki fundið nein haldbær rök gegn því önnur en; Afþvíbara! „Það hefur nefnilega ekki verið skoðað eða rætt fyrir alvöru hvort hugmyndin sé mjög góð eða alveg ómöguleg,“ segir í greininni. Samhliða birtingu greinarinnar er birtur QR kóði þar sem fólk getur lagt málinu lið með því að skrá sig á undirskriftalistann.

Hefja söfnun undirskrifta og hvetja til að Landsbankahúsið verði gert að Ráðhúsi - Skessuhorn