Umsóknarfrestur vegna Barnó framlengdur

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa framlengt umsóknarfrestinn fyrir barnamenningarhátíðina Barnó – BEST MEST VEST! til og með 24. ágúst næstkomandi. Áður var umsóknarfrestur til mánudagsins 10. ágúst.

Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka virkan þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026 og fram kemur að enn er tækifæri til að senda inn hugmyndir að spennandi atriðum, viðburðum og skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–18 ára.

Einstaklingar, listafólk, hópar, félagasamtök, skólar, stofnanir og aðrir eru hvattir til að nýta viðbótarfrestinn og senda inn hugmyndir. Um getur verið að ræða listsmiðjur, tónlist, dans, sviðslistir, skapandi verkefni eða eitthvað allt annað sem gleður, vekur forvitni og virkjar sköpun barna og ungmenna. Sérstaklega er hvatt til verkefna sem stuðla að inngildingu, fjölbreytileika og virkri þátttöku barna og ungmenna.

Viðburðir sem hér um ræðir þurfa að fara fram á Vesturlandi á tímabilinu 1.–31. október 2026 og fjárstuðningur getur verið í boði fyrir valin verkefni. Öll innsend atriði og verkefni verða tekin til skoðunar af stýrihópi Barnó sem sér um val á dagskrá hátíðarinnar.