Torgið í Búðardal

Næstkomandi laugardag verður stór dagur í lífi íbúa í Dalabyggð. Þá verða að viðstöddum forseta Íslands ný íþróttamannvirki tekin í notkun. Þar er m.a. að finna sundlaug, vaðlaug, kalda og heita potta, sauna, glæsilegt íþróttahús, líkamsræktarsal, hreinlætisaðstöðu auk bjarts og rúmgóðs anddyris. Undirritaður hefur skoðað þessi mannvirki og hreifst af. Að samfélag sem einungis telur um 650 íbúa geti ráðist í framkvæmd af þessari stærðargráðu er ekkert annað en stórvirki sem ber vott um áræðni og sóknarhug. Fjárfesting sem nemur ríflega tveimur milljónum á hvert mannsbarn í Dölum, er ekkert smá. Vissulega losaði sveitarsjóður um einhverjar eignir til að skapa rými fyrir fjárfestingu af þessari stærðargráðu og jafnvel mun framkvæmdin þýða að fyrst um sinn verði sveitarsjóður við athugunarmörk í skuldastöðu. En, ráð var fyrir því gert og allur kostnaður er vel innan skekkjumarka áætlunar.

Velta má því fyrir sér hvort sveitarfélagið hafi yfirleitt haft ráð á að ráðast ekki í þessa framkvæmd. Ef samfélagið vill vaxa þarf það að laða til sín yngra fólk. Þá geri ég fastlega ráð fyrir því að eftir leik- og grunnskóla sé fyrst spurt um aðgengi og gæði íþróttamannvirkja. Ef sú aðstaða er góð laðar það einfaldlega til sín nýja íbúa. Í nútíma samfélagi er það grunnþörf fólks. Góð íþróttamannvirki gegna nefnilega lykilhlutverki í heilbrigðu og virku samfélagi. Nýlega sögðum við hér frétt um hversu mikið aðsókn í íþróttmannvirkin á Akranesi jókst við að aðstaðan var bætt; nýtt íþróttahús tekið í notkun og margfalt stærri líkamsræktarsalur opnaður. Aðsóknin fimmfaldaðist frá fyrsta degi.

Fyrir börn, ungmenni sem og fullorðna er mikilvægt að geta stundað hreyfingu, þjálfað hæfileika sína og notið samveru. Regluleg hreyfing hefur jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu og aðgengi að góðum íþróttamannvirkjum auðveldar fólki að gera hreyfingu að hluta af daglegu lífi. Fyrir börn og ungmenni eru góð íþróttamannvirki sérstaklega mikilvæg. Þar læra þau aga, samvinnu og að bera virðingu fyrir öðrum. Íþróttir stuðla einnig að auknu sjálfstrausti og vellíðan, sem svo aftur hefur jákvæð áhrif á nám og félagslíf. Þegar aðstaðan er góð og örugg eykst áhugi á þátttöku og fleiri fá tækifæri til að prófa sig áfram í mismunandi íþróttagreinum.

Íþróttamannvirki styrkja þannig samfélagið sem heild. Þau verða oft samkomustaðir þar sem fólk hittist, styður hvert annað og byggir upp samkennd. Að fjárfesta í góðum íþróttamannvirkjum er því fjárfesting í heilsu, menntun og samfélagslegri samstöðu.

Skipulagslega er ný íþróttamiðstöð í Búðardal einkar vel útfærð. Við sama torgið er nú, auk íþróttahúss og sundlaugar; leikskólinn, grunnskólinn og félagsheimilið Dalabúð. Líklega er hvergi á öðrum stað á landinu allri þessari mikilvægu þjónustu komið fyrir á sama svæðinu. Handan götunnar er svo ráðhús bæjarins þaðan sem sveitarstjórn og starfsfólk getur fylgst með af efri hæðinni. Virkilega hentug uppbygging og sést vel á þeim myndum sem teknar hafa verið úr lofti að undanförnu. Með vísan til þessa slæ ég því fram að kannski gæti nafnið á nýju mannvirkjunum einfaldlega orðið Torgið í Búðardal. Ég óska Dalamönnum til hamingju með ný og einkar glæsileg mannvirki og hvet Vestlendinga til að samfagna með þeim næstkomandi laugardag. Til lukku!

Magnús Magnússon