Meirihluti íslenska hópsins á kaupstefnunni. Ljósm. Cruise Iceland

Stór hópur mætti á kaupstefnu skemmtiferðaskipa

Ríflega 30 manns af landinu tók þátt í skemmtiferðaskipa kaupstefnunni SeaTrade Global sem nýverið fór fram í Miami. Þar voru saman komnir meðlimir Cruise Iceland frá Faxaflóahöfnum, Grundarfjarðarhöfn, höfnum Vesturbyggðar, Ísafjarðar, Skagafjarðar, Hafnasamlagi Norðurlands, hafnir Múlaþings og Vestmannaeyjahöfn. Dekkuðu þær þannig bærilega íslenska ferðaþjónustu hringinn í kringum landið. Þá sóttu kaupstefnuna einnig þjónustuaðilar skemmtiferðaskipa frá Gáru, Iceland Travel, Atlantik, Skeljungi og Bustravel. Allir fulltrúarnir komu saman á glæsilegum bás Cruise Iceland og Íslandsstofu.

Þátttakendur frá Íslandi áttu árangursríka fundi með skipafélögum, þar sem kynntar voru allar þær aðstöðu- og þjónustunýjungar sem skipafélögin munu sjá nú þegar á þessu sumri og fleiri bætast við á næstu árum. Samanber bætta aðstöðu í Reykjavík með nýrri farþegamiðstöð, Torfunesbryggu á Akureyri, bættri aðstöðu á Grundarfirði, fyrirhugaðri stækkun á Sauðarákróki og Baug Bjólfs sem verður útsýnispallur á Seyðisfirði, svo fátt eitt sé nefnt.

Margt áunnist

Að venju var haldinn stór sameiginlegur fundur í samvinnu við Cruise Lines InternationalAssociation (CLIA) með forsvarsmönnum þeirra skipafélaga sem sigla til Íslands. Þar var hægt að sjá að öflugt starf sem hefur átt sér stað á undanförnum árum undir regnhlíf Cruise Iceland – hefur skilað sér í að tryggja viðskiptasambönd til framtíðar við skipafélögin. „Á fundinum vildu forsvarsmenn skipafélaganna koma því á framfæri við íslenska hópinn og þá sem komust ekki með að þessu sinni, að fagmennska, samvinna og þrautseigja okkar á Íslandi væri til eftirbreytni. Við hefðum séð fádæma fjölgun í komum eftir heimsfaraldur, með öllum þeim áskorunum sem því fylgdi, en við höfðum tekist á við það með æðruleysi og þrautseigju. Afrakstur erfiðis sést í einstöku bókunarkerfi skemmtiferðaskipa, álagsdreifingu, þróun á landtengingum, stórbættri aðstöðu og þjónustu um landið allt. En ekki síst hefur okkur tekist að skapa meiri sátt um geirann með samtali og upplýsingagjöf til hagaðila í stjórnsýslu, meðal almennings og meðal stjórnvalda. Það er ekki lítið afrek þar sem margir aðrir áfangastaðir eru í þeim sporum núna að eiga margt af því eftir sem við höfum nú þegar náð með okkar einstöku íslensku þrautseigju,“ sagði Sigurður Jökull Ólafsson framkvæmdastjóri Cruise Iceland.

Hægur bati í bókunum

Sigurður Jökull segir að ólgusjór undanfarinna ára í laga- og skattaumhverfi skemmtiferðaskipa við Ísland þýði því miður að það verður samdráttur í ár og á næsta ári. „Hins vegar þá sjáum við hægan bata eftir þann stöðugleika sem skapaðist eftir breytingar á Alþingi fyrir seinustu jól. Bókunartölur eru í ágætu samræmi við upplifun okkar allra af samtölum við forsvarsmenn skipafélaga á nýliðinni kaupstefnu SeaTrade Global í Miami. Óvissa í rekstrarumhverfi þýðir vissulega að sum skip hafa verið færð á önnur svæði eða þá að fjöldi skipakoma hvers skips hefur lækkað hér á landi. Hins vegar þá er ljóst að stórbætt aðstaða og þjónusta við skemmtiferðaskip á Íslandi, ásamt stöðugra skatta- og lagaumhverfi, eru staðreyndir sem sitja eftir og hafa náð eyrum forsvarsmanna skipafélaga alla leið upp í stjórnarherbergin. Það er gott veganesti inn í framtíðina, þegar við þurfum núna allir sem einn að spyrna við og ná stöðu okkar aftur með sjálfbæran vöxt til framtíðar,“ segir Sigurður Jökull.