
Steinunn tekur við kórstjórn
Steinunn Þorvaldsdóttir tónlistarkona og ljósmyndari hefur tekið við starfi söngstjóra í tveimur kórum. Annars vegar Kirkjukór Borgarneskirkju og hins vegar hjá Karlakórnum Söngbræðrum. Hún tekur við starfi Jónínu Ernu Arnardóttur í Borgarneskirkju en af Viðari Guðmundssyni með Söngbræður.
Í tilkynningu frá Karlakórnum Söngbræðrum segir m.a: „Eftir 20 ára einstaklega ánægjulegt og farsælt samstarf ákvað Viðar Guðmundsson að láta gott heita við stjórnvölinn hjá okkur Söngbræðrum í vor. Kunnum við honum hinar bestu þakkir fyrir allar góðu stundirnar við æfingar, tónleika og aðra samveru í gegnum tíðina.“
Þá segir í tilkynningu kórsins: „Við leituðum ekki langt yfir skammt að nýjum stjórnanda og höfum samið við Steinunni Þorvaldsdóttur um að taka við stjórnartaumunum í haust. Steinunn er frá Hjarðarholti í Stafholtstungum, en býr á Svartagili í Norðurárdal. Hún er sprenglærð í tónlist; með háskólagráðu í klassískum söng og tónsmíðum, hefur mikla reynslu af kórstarfi og gaf nýlega út plötu með frumsömdum kórverkum við ljóð kvenna. Steinunn er einnig ansi slyngur ljósmyndari.“