
Nýverið var gerð videóupptaka af nýju jólalagi eftir Valgerði Jónsdóttur tónlistarkonu af Akranesi. Lagið er samið við sálm eftir Brynju Einarsdóttur og nefnist Jólasálmur. Barnakór úr Grundaskóla og Karlakórinn Svanir sungu en um undirleik sáu þau Flosi Einarsson og Sigrún Þorbergsdóttir. Valgerður stjórnaði kórunum en Bergur Líndal Guðnason kvikmyndagerðarmaður tók upp. Lesa meira








