Ókostir smæðarinnar

Eftir því sem liðið hefur á þetta ár hefur sífellt gerst háværari krafan um að fyrirtæki og stofnanir hins opinbera stemmi stigu við verðbólgu. Örar verðhækkanir næra nefnilega verðbólgu sem aftur hefur þær afleiðingar að vextir eru í hæstu hæðum. Til langs tíma bitnar það á öllum, mest þó á almenningi.

Almennt má segja að viðtökur við þessu ákalli verkalýðsforystunnar og fleiri hafi verið jákvæðar. Sveitarfélög ákváðu til að mynda að halda öllum gjaldskrár- og skattahækkunum fyrir næsta ár innan við 2,5%. Ríkisstjórnin boðaði sömuleiðis hófstillingu hækkana, en hélt reyndar kílómetragjaldinu utan við sviga. Mörg fyrirtæki hafa boðað óbreytt verð á næsta ári. Gott ef eitt bílaumboðið ákvað ekki nýlega að lækka verð á nýjum bílum sem nam styrkingu krónunnar í haust. Dropinn holar vissulega steininn hvað þetta snertir og ástæða til að gleðjast yfir öllu sem komið gæti böndum á hina þrálátu verðbólgu sem mánuð eftir mánuð er að mælast upp undir sex prósentustig.

Í blaðinu í dag er sagt frá nýrri verðkönnun ASÍ á matvöru. Þar kemur fram að víða eru að mælast verðhækkanir í stað lækkana. Orðrétt segir í tilkynningu ASÍ: „Því má við þetta bæta að gengi íslensku krónunnar hefur á liðnum mánuðum styrkst talsvert og virðist sem sú styrking sé ekki að skila sér inn í lækkun á verði innfluttra matvæla.“ Þegar íslenska örkrónan er borin saman við evru hefur gengi hennar á síðustu mánuðum styrkst um 8%. Í ljósi þess að meirihluti vörutegunda í verslunum eru innfluttar beinast því spjótin að þessum fjórum matvörukeðjum sem selja nær alla matvöru sem Íslendingar þrífast á.

Í rauninni ætti það að flokkast sem lögreglumál að í ljósi aðstæðna skuli matvörukeðjurnar kjósa að svína á Íslendingum með þessum hætti. Í stað þess að við ættum að sjá 8% lækkun á innfluttum mat, er í fleiri tilvikum sem verðhækkanir eru að mælast. Af þessu má sjá að eigendur þessara matvörukeðja bera ekki hag íslenskra neytenda fyrir brjósti, heldur þvert á móti. Þeir kjósa að græða á gengismuninum. Öll fögru fyrirheitin í haust um verðvernd og jafnvel lækkun matvöru voru innantóm orð.

Í einhverjum tilfellum eru það lífeyrissjóðirnir sem eiga þessar matvörukeðjur sem um ræðir. Ég trúi því tæpast að stjórnir þeirra hafi ákveðið að hafa neytendur að féþúfu. Böndin berast því að stjórnendum þeirra.

Vissulega lifum við í fámennu landi þar sem virk samkeppni þrífst ekki á öllum sviðum. Af því leiðir að oft sitja fyrirtæki í þægilegri stöðu fákeppni, litlu systur einokunar. Við sjáum einkenni fákeppnisfyrirtækja gjarnan með því að þau auglýsa lítið, jafnvel ekkert. Þau telja sig ekki þurfa að „eyða“ í auglýsingar því markaðinum er einhvern veginn bróðurlega skipt á milli þriggja eða hámark fjögurra ráðandi fyrirtækja. Svo ef einhver fleiri fyrirtæki gera sig líkleg til að keppa við fákeppnina, eru þau keypt upp. Hvernig annars eigum við að útskýra nýlega sölu Fjarðarkaupa til einnar blokkarinnar á markaði? Fjarðarkaup í eigu sömu fjölskyldu til áratuga var gleypt í einum bita. „Ein stök verslun,“ eins og eitt sinn hljómaði, mun aldrei heyrast framar.

Já, við þessir íslensku neytendur eigum fátt um fína drætti. Þegar fákeppni ríkir er neytandinn ávallt berskjaldaður. Lætur pönkast á sér. Ef fólki svo ofbýður þegar flett er ofan af spillingu í skjóli stærðar á markaði, refsar fólk í þrjá daga, en er svo búið að gleyma öllu eftir það. Hverjir hafa til dæmis ekki keypt vörur Ölgerðarinnar á síðustu dögum, jafnvel þótt innan við mánuður sé síðan Kveikur fletti ofan af vægast sagt vafasömum viðskiptaháttum fyrirtækisins? Við sem örþjóð verðum líklega að sætta okkur við ókosti smæðarinnar, við höfum ekki raunverulegt val, frekar en fangi sem verður að éta það sem kokkurinn eldar, en svelta annars.

Magnús Magnússon