Norðurálsmótið á Akranesi

Norðurálsmótið í knattspyrnu hefst í vikunni á Jaðarsbökkum á Akranesi og lýkur á sunnudaginn. Von er á fjölda gesta alla mótsdagana. Það verða drengir og stúlkur í 8. flokki sem ríða á vaðið á Litla Norðurálsmótinu sem spilað verður á morgun, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Áætlað er að keppni hefjist kl. 10:00 og verður mikið líf og fjör á Akranesi þann daginn. Föstudaginn 19. júní hefst svo sjálft Norðurálsmótið í 7. flokki með skrúðgöngu klukkan 11 og mótssetningu í framhaldinu á Jaðarsbökkum. Búast má við að bærinn verði þá stappfullur af glöðum og kátum krökkum og fjölskyldum þeirra. Á síðasta ári voru 336 lið skráð til keppni og því voru keppendur um 2000 frá 38 aðildarfélögum víðsvegar af landinu og einu félagi frá Grænlandi.

„Mótstjórn hvetur þjálfara og foreldra að hafa það hugfast að Norðurálsmótið er mót fyrir byrjendur og hefur því uppeldislegt gildi. Byrjendur þurfa að fá að læra af mistökum. Hjálpumst að, þá gengur allt betur. Fótbolti er skemmtun. Þessi skemmtun skiptir okkur öll máli. Við sendum baráttukveðjur til allra þátttakenda og óskum ykkur góðs gengis og síðast en ekki síst góðrar skemmtunar,“ segir í tilkynningu frá mótsstjórninni.

Á kvöldskemmtun fyrir gesti á laugardagskvöldinu má nefna að VÆB og Luigi munu skemmta og má búast við frábærri stemningu.