Þeir Sölvi, Hans Bjarni og Kristján Freyr voru nýbunir að hjóla nokkra hringi þegar tíðindamaður Skessuhorns mætti á svæðið. Ljósm. tfk

Líf að færast í Kolgrafafjörðinn

Fyrir fimmtán til tuttugu árum var mikil mótorkrossmenning í Grundarfirði og margir sem áttu slík tæki. Þá tók sig til hópur manna sem útbjó mótorkrossbraut í Kolgrafafirði sem var sæmilegasta framkvæmd. Svo fjaraði töluvert undan notkun á brautinni og nú hefur hún verið lítið notuð undanfarin misseri og farin að láta á sjá. Nú er hinsvegar aftur farið að færast líf í brautina þar sem nokkrir ungir mótorkrossáhugamenn hafa tekið sig til við að lagfæra og laga til brautina. Hafa þeir til að mynda mætt með gröfu til að laga til og betrumbæta. Vonandi hefur þetta hvetjandi áhrif á aðra mótorkrossmenn til að mæta og taka nokkra hringi.