
Krefjandi Ljósufjallaganga með hraunbaði og kvöldverði í lokin
Ferðafélag Snæfellsness efnir laugardaginn 29. ágúst til krefjandi göngu á Ljósufjöll þar sem stefnt verður á þrjá tinda ef veður og aðstæður leyfa. Að göngu lokinni bíður þátttakenda kærkomin slökun í hraunbaðinu á Miðhrauni og kvöldverður í Hlöðunni.
Hópurinn leggur af stað kl. 9 að morgni og er gert ráð fyrir að gönguferðin sjálf taki sjö til níu klukkustundir. Leiðin er um 15–18 kílómetrar og samanlögð hækkun um eða yfir eitt þúsund metrar. Nálægt tindunum er landslag jafnframt þungt yfirferðar. Gangan er því ætluð vönu göngufólki í góðu formi og lögð er áhersla á að þátttakendur séu í góðum gönguskóm með ökklastuðningi. Fararstjóri verður Guðmundur Rúnar Svansson.
Eftir átök dagsins verður haldið að Miðhrauni, Lava Resort, þar sem þátttakendur geta slakað á í hraunbaðinu áður en sest verður að kvöldverði í Hlöðunni. Þátttökugjald er 18.500 krónur og er fararstjórn, aðgangur að heitum potti og kvöldverður innifalinn. Skráning fer fram með tölvupósti á ffsn@ffsn.is og þarf að tilgreina nafn, símanúmer og netfang þátttakenda. Takmarkaður fjöldi kemst í ferðina og gildir því að fyrstur kemur, fyrstur fær. Allur ágóði af göngunni rennur til starfsemi Ferðafélags Snæfellsness.