
Kellingar ganga um Breiðina og Partana
Enn og aftur ætla söguhópurinn Kellingarnar að efna til göngu. Er þetta tólfta gangan og hefst hún á Akratorgi kl. 13:30 á Sjómannadaginn. Að þessu sinni er ferðinni heitið niður á Breið en þar hófst þéttbýlismyndun á Akranesi, þar er vagga útgerðarsögunnar og þar varð hugtakið Skagamaður til. Rifjuð verður upp saga húsa og fólksins sem í þeim bjó. Eitthvað verður talað um útgerð og verslun að ógleymdum sjóslysum. Kellingarnar mæla eindregið með því að fólk staldri við í Jónsbúð á bakaleiðinni og fái sér kaffi og með´því hjá slysavarnakonum.
Eins og fyrr segir er þetta tólfta ganga þeirra Kellinganna. Viðfangsefnin hafa verið margvísleg en allt hófst þetta með göngu í tilefni að 100 ára kosningarrétti kvenna árið 2015. Fór sú ganga fram 17. júní. Næstu árin voru göngurnar á Írskum dögum og hin síðari ár einnig á Sjómannadeginum. Þá hefur verið flutt styttri útgáfa af göngunum á Dvalarheimilinu Höfða þar sem myndum hefur verið bætt við frásögnina.
Kellingarnar hafa lagt metnað sinn í að reyna að hafa það sem skemmtilegra reynist, flytja textann vel, gjarnan flétta inn í hann ljóðum og jafnvel bresta í söng. Síðast en ekki síst þá er hópurinn með sitt eigið hirðskáld, Auði Sigurðardóttur, og hefjast göngurnar alltaf á vísum eftir hana.
Einhverjir myndu kannski segja að tólf ár sé langur tími en Kellingarnar eru ekki af baki dottnar. Nægur efniviður er í sögu Akraness og fólksins sem þar býr og svo lengi sem einhverjir nenna að rölta með hópnum verður haldið áfram. Ekki spillir fyrir að verkefnið hefur notið dyggilegs stuðning frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Kellingarnar vonast eftir því að sjá sem flesta á Akratorgi kl. 13:30 á Sjómannadaginn.
Guðbjörg Árnadóttir
Hallbera Jóhannesdóttir
Halldóra Jónsdóttir