Hver er Vestlendingur ársins? – Tilnefningar óskast

Skessuhorn stendur nú í 29. skipti fyrir vali á Vestlendingi ársins, þeim íbúa í landshlutanum sem hefur á einhvern hátt skarað fram úr á árinu og verðskuldar sæmdarheitið Vestlendingur ársins 2026. Skilyrði er að sá/þeir sem tilnefndir eru hafi búsetu á Vesturlandi.
Allir íbúar á Vesturlandi geta sent tilnefningar á ritstjórn Skessuhorns um Vestlending ársins á netfangið: skessuhorn@skessuhorn.is eigi síðar en 18. desember nk. Gott er ef ábendingunum fylgi rökstuðningur í einni eða tveimur setningum. Ritstjórn mun vinna úr ábendingum en tilkynnt verður um niðurstöðuna miðvikudaginn 6. janúar 2027.