Héldu sameiginlegan framboðsfund á Akranesi

Framboðin fimm sem bjóða fram lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi 16. maí stóðu fyrir sameiginlegum framboðsfundi í Tónbergi sl. fimmtudagskvöld. Fundinum stýrði Magnús Guðmundsson. Til svara voru allir oddvitar auk eins að auki frá hverju framboði. Frá Viðreisn voru Jón Guðni Guðmundsson og Helga Björg Þrastardóttir, frá Miðflokki Hrafn Ágúst Björnsson og Ólafur Rúnar Sigurðsson, frá Sjálfstæðisflokki Líf Lárusdóttir og Bjarnheiður Hallsdóttir, frá Samfylkingu Sigurður Vopni og Kristinn Hallur Sveinsson og frá Framsókn með frjálsum Ragnar B Sæmundsson og Liv Ása Skarstad.

Fyrirkomulag fundarins var þannig að framboðin fengu í upphafi fimm mínútur hvert til að kynna sínar áherslur. Þá var farið í að svara völdum spurningum fundarstjóra, en þær snerust um skipulagsmál, skólamál, atvinnulíf, íþróttir og málefni eldri borgara. Eftir það var gefið tækifæri fyrir fyrirspurnir úr sal, en að endingu fluttu fulltrúar flokkanna stutt kveðju- og hvatningar ávarp. Fundurinn var afar málefnalegur, ágætar framboðsræður voru fluttar og spurningar komu um ólíkt efni. Helst mátti greina áherslumun milli nýrra framboða og þeirra sem átt hafa bæjarfulltrúa lengi. Fulltrúar þriggja framboða sem setið hafa í bæjarstjórn voru með mjög áþekkar áherslur, enda verið sem samstilltur hópur allt kjörtímabilið. Í stuttri samantekt verður hér skautað yfir nokkur atriði sem komu til tals á fundinum.

Skipulagsmál

Fyrst var rætt um skipulagsmál á Akranesi. Meðal annars bárust neysluvatnsmál til tals en fyrr sama dag kom í ljós að búið væri að finna neysluvatn undir hlíðum Skarðsheiðar sem líklega duga til að leysa brýna þörf. Laskað gatna- og gangstéttakerfi kom einnig til tals og töldu menn enga sérstaka þörf að fjölga hraðahindrunum vegna ósléttra gatna. Nefnt var að bæta þurfi umhirðu grænna svæða, ekki síst þeirra sem lítið eða ekkert hefur verið sinnt um. Fram kom hjá frambjóðendum Miðflokks að ekki megi líta á Akranes sem úthverfi og að leggja þurfi aukna áherslu og metnað í uppbyggingu atvinnulífs, bæði með að laða ný fyrirtæki í bæjarfélagið og hlúa þurfi betur að þeim sem fyrir eru. Fulltrúar Viðreisnar vildu að lóðaverð yrði lækkað og lögðu áhersla á að brjóta til byggingar hverfi sem jarðvegsskipti væru ódýrari. Nefndu frambjóðendur einnig að gera þurfi skipulagsferla skilvirkari og fljótlegri.

Skólamál

Í umræðunni um skólamál kom fram að treysta eigi fagfólki í skólunum til að stýra málum skólanna án beinnar aðkomu bæjarstjórnar. Þar eigi sérfræðingar í þeim efnum að vera. Viðreisn vildi að bygging nýs leikskóla yrði sett í forgang. Oddviti Miðflokksins lagði það til að elstu tveir árgangar í grunnskólunum verði sameinaðir í kennslu. Það væri félagslega gott fyrir ungmennin en auk þess myndi losna um húsnæði í skólunum sem mætti m.a. nýta undir leikskóla og vísaði þar til gamla Garðasels. Samfylking leggur áherslu á að nýr leikskóli verði sem fyrst byggður á Neðri Skaga. Sjálfstæðisflokkur leggur áherslu á að skólalóðir við grunnskólana verði lagfærðar. Oddviti þeirra lagði auk þess ríka áherslu á að armslengd væri á milli pólitíkurinnar og faglegs starfs í skólunum. Rætt var um heimgreiðslur til að brúa bilið fyrir forelda yngstu barna áður en þau komast á leikskóla. Í umræðunni kom fram að undanfarin ár hefur verið einkar mikið álag á starfsfólk og nemendur beggja grunnskólanna vegna framkvæmda sem þar hafa staðið yfir. Fram kom að nú væri hafið samtal um byggingu þriðja grunnskólans á Akranesi.

Atvinnumál

Í umræðunni um atvinnumál nefndi Framsóknarflokkur að sækja þurfi fram í atvinnumálum í stað þess að bíða. Gera þurfi Flóahverfið meira aðlaðandi og að leggja verði áherslu á að byggja nýtt stjórnsýsluhús við Mánabraut. Mun flokkurinn leggja það til að fjárfestar verði fengnir til að byggja og eiga húsið, til að auka ekki við skuldastöðu bæjarsjóðs frekar en orðið er. Komið hefur til tals að ríkið leigi hluta hússins m.a. undir heilsugæslustöð til að létta á starfsemi sjúkrahússins við Merkigerði 9. Sjálfstæðisflokkur leggur áherslu á að efla þurfi atvinnulíf á Akranesi sjálfu og koma ferðaþjónustu loks á kortið. Samfylking tók undir það sjónarmið og vill auka kynningarstarf á sviði ferðamála. Einnig vill Samfylking tryggja öflun orku og neysluvatns. Öll framboð binda vonir við að fyrsta hótelið á Akranesi, í gamla Landsbankahúsinu, verði til þess að kveikja áhuga á Akranesi sem ferðaþjónustubæjar. Viðreisn benti á að styðja þurfi þéttar við þau fyrirtæki sem þegar eru starfandi í bæjarfélaginu og efla nýsköpun.

Íþróttir

Íþróttastarf var meðal valinna umræðuefna fundarstjóra. Viðreisn vill tryggja að öll börn hafi jafna möguleika til að stunda íþróttir og til þess þurfi að styðja betur við ÍA. Miðflokkurinn ræddi knattspyrnuvöll og benti á að ný sundlaug væri ekki einvörðungu fyrir sundíþróttina heldur hreinræktað lýðheilsumál. Rætt var um að hækka þurfi frístundastyrki til að auka almenna iðkun íþrótta. Fram kom hjá öllum framboðum að íþróttir væru hluti af menningu bæjarbúa. Sjálfstæðisflokkur benti á að á Akranesi væri hæsta hlutfall landsmanna sem stunduðu íþróttir. Fulltrúar Framsóknarflokks létu þess getið að á undanförnum átta árum hafi verið fjárfest fyrir sex milljarða króna í íþróttamannvirkjum. Rætt var um gerð nýs aðalvallar fyrir knattspyrnu, stækkun golfvallarins um níu holur og hækkun frístundastyrkja.

Eldri borgarar

Málefni eldri borgara voru fimmta meginþema fundarstjóra. Frambjóðendur voru sammála um að leggja bæri áherslu á að Akranes væri samfélag þar sem gott væri að eldast. Bæði í ummælum frambjóðenda og í fyrirspurnum kom fram að nú þegar hefðbundin dvalarrými eru ekki lengur til staðar á Höfða, væru of margir í slæmu millibilsástandi varðandi búsetu þegar heilsu hrakaði. Framsókn benti á að brýn þörf væri á að fjölga hjúkrunarrýmum á Höfða um a.m.k. 60 rými en slíkt væri vissulega á höndum ríkisins. Fjölgun íbúa og hækkandi lífaldur fólks krefjist þess að strax verði ráðist í stækkun hjúkrunarheimilisins. Framboðin bentu á að forvarnir og aukin hreyfing og íþróttir væri eldra fólki lífsnauðynleg til að halda lífsgæðum sínum og heilsu í sem bestu lagi sem allra lengst. Samfylking benti á verkefnið Gott að eldast sem væri afar mikilvægt til að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu. Bentu á náungakærleikann sem felst í að fylgjast með náunganum og koma í veg fyrir einangrun og einsemd. Í fyrirspurn og umræðu kom fram að óþols er farið að gæta í röðum eldri borgara um að starfsemi bæjarskrifstofu hverfi sem fyrst úr húsnæði við Dalbraut 4. Fjölgun í Feban krefðist þess og var bent á að aldrei hafi staðið til að bæjarskrifstofur yrðu þar til langdvalar. Miðflokkur leggur til að lækka ætti fasteignagjöld til eldri borgara og að fjölga þyrfti búsetuúrræðum fyrir eldra fólk. Viðreisn tók undir það og sagði mikilvægt að eldra fólk hefði val um búsetu með góðri heimaþjónustu.

Fyrirspurnir

Að loknum umræðum um þessi mál var opnað fyrir fyrirspurnir úr sal. Lýst var áhyggjum af því að fyrirtækjum í veitingaþjónustu hafi stöðugt verið að fækka í bæjarfélaginu, tveir veitingastaðir og matarvagn hefur nú verið lokað á skömmum tíma. Framboðin voru beðin að svara því hvernig þau ætluðu að bregðast við þeirri staðreynd. Í svörum kom fram að nýtt hótel væri góðs viti, en einnig að auka þurfi sérstöðu og afþreyingu. Stækkun golfvallar, Guðlaug og fleiri atriði hefði vissulega jákvæð áhrif, en fleira þurfi að koma til. Bentu frambjóðendur á að íbúar þyrftu að vera duglegri að nýta þá þjónustu sem er í boði til að fyrirtækin geti dafnað. Spurt var út í dagforeldramál, þá dapurlegu staðreynd að 13 ára börn fái ekki sumarvinnu að þessu sinni og þá voru frambjóðendur spurðir hvenær til stæði að taka fyrstu skóflustungu að nýrri sundlaug? Frambjóðendur voru spurðir, einkum þeir sem setið hafa í bæjarstjórn á liðnu kjörtímabili, hvort þeir væru stoltir að framgangi í málefnum fatlaðra. Þar var fyrirspyrjandi að spyrja út í búsetukjarna, sambýlismál fyrir fatlaða og Samfélagsmiðstöðvar sem til stóð að byggja. Framboðin viðurkenndu að lítið hefði áunnist á kjörtímabilinu í þessum efnum. Þá var spurt út í fjármálastjórnun og afkomu bæjarsjóðs, gatnakerfið og heimgreiðslur til foreldra ungra barna. Loks var spurt út í vonda lykt af búfjáráburði í nágrenninu. Frambjóðendur halda því fram að versti fnykurinn komi af dreifingu hænsna- og svínaskíts á Kjalarnesi. Oddviti Sjálfstæðisflokks uppskar hlátur þegar hún sagðist vilja beita sér fyrir annarri ríkjandi vindátt á næsta kjörtímabili.

Fundurinn í Tónbergi fór afar vel fram. Þangað mættu um 200 gestir og vafalítið hafa einhverjir náð að mynda sér skoðun um hvernig atkvæðinu verður best varið í kjörklefanum 16. maí næstkomandi.