Heilög Sesselja vakir yfir

Heilög Sesselja er eins og margir þekkja verndardýrlingur tónlistarinnar. Talið er að hún hafi verið uppi á þriðju öld eða jafnvel fyrr. Sesselja er sögð hafa verið af rómverskum aðalsættum og átti að hafa heitið Guði því að leggjast aldrei með nokkrum manni. Henni var engu að síður gert að giftast hinum heiðna Valeríanusi. Leið svo að brúðkaupsdegi, og meðan tónlistin ómaði söng hún í hjarta sínu til Guðs: „Gerðu hjarta mitt og líkama hreinan svo að ég megi eigi flekkuð verða.“ Á brúðkaupsnóttina sagði Sesselja Valeríanusi að hún væri lofuð engli sem ekki vildi að hún missti meydóm sinn. Valeríanus vildi þá sjá engilinn, og til að eiga þess kost lét hann skírast. Eftir það birtist engillinn honum. Tiburtíus bróðir hans sá einnig engilinn og snerist sömuleiðis til kristinnar trúar. Á þessum tíma var kristni óleyfileg í Róm og dóu þau öll píslarvottadauða; Valeríanus, Tiburtíus og Sesselja.

Heilög Sesselja varð líklega dýrlingur tónlistar sökum þess að hún lofsamaði Guð með hljóðfæraleik og söng eins og fyrr segir. Margir listamenn hafa minnst hennar í verkum sínum, þar á meðal listmálararnir Rafael og Rubens, tónskáldin Purcell og Händel en einnig Páll Guðmundsson listamaður á Húsafelli sem gerði þessa lágmynd af Heilagri Sesselju og naut hún sín vel í lóni á Húsafelli um liðna helgi böðuð haustlitum. Heilög Sesselja er mjög tengd Húsafelli því kirkjan þar til forna var helguð henni.