Frá feimnismáli til meiri nálgunar

Kynfræðsla á Íslandi hefur gengið í gegnum öfgafullar breytingar á síðustu áratugum. Lengi vel var umræðan um kynlíf og kynþroska sveipuð þögn og feimni, bæði innan veggja heimila og í skólakerfinu. Á fyrri hluta 20. aldar var fræðsla af þessu tagi nánast engin og þegar hún loks skaut rótum í skólum á sjöunda og áttunda áratugnum var hún fyrst og fremst líffræðileg. Sjálfur var ég þá saklaust grunnskólabarn og man vel kennslustundir í heilsufræði. Þegar bekkurinn nálgaðist ákveðna blaðsíðu í heilsufræði bókinni fóru nemendur að pískra sín á milli og velta því fyrir sér hvort kennarinn, sem var virðuleg eldri kennslukona, myndi hlaupa yfir hana á hundavaði, eða jafnvel fletta hratt og örugglega yfir. Þess má geta að þegar að því kom var hún melduð veik og sleppti því þessari blaðsíðu. Í þá tíð fengu nemendur gjarnan stuttan fyrirlestur frá skólahjúkrunarfræðingi eða náttúrufræðikennara um líffærafræði, tíðahringinn og getnað, oft á tíðum í kynjaskiptum hópum þar sem áherslan var lögð á staðreyndir en lítið rými gefið fyrir spurningar og hvað þá að ræða tilfinningar.

Nokkru síðar, eða á níunda áratugnum, eftir tilkomu alnæmis og með aukinni umræðu um kynsjúkdóma, breyttist tónninn. Kynfræðsla tók á sig skýrari forvarnarsvip þar sem megináherslan var lögð á varnir gegn sjúkdómum og ótímabærum þungunum. Farið var að gefa smokka. Þetta þótti mikilvægt skref í lýðheilsu, en fræðslan einkenndist oft af ákveðinni „kynhræðslu“ þar sem áhætta og hættur voru í forgrunni á kostnað umræðu um jákvætt kynheilbrigði, nánd og sjálfsmynd. Jafnframt var framkvæmdin afar misjöfn milli skóla og valt á áhuga, þekkingu og jafnvel einnig á djörfung kennarans.

Um aldamótin og á fyrstu áratugum þessarar aldar fór að gæta nýrrar hugmyndafræði; alhliða kynfræðslu. Með tilkomu internetsins, samfélagsmiðla og auðvelds aðgengis ungmenna að klámi varð ljóst að hefðbundin líffræðikennsla dygði ekki lengur til að undirbúa ungt fólk fyrir veruleikann. Félagasamtök, heilbrigðisstarfsfólk og ungmennahreyfingar fóru að kalla eftir nútímalegri og opnari nálgun. Verkefni á borð við Viku6 í Reykjavík og starf Samtakanna ’78 og Stígamóta áttu stóran þátt í að víkka sjóndeildarhringinn.

Í dag er litið svo á að kynfræðsla eigi að vera samfelld í gegnum alla skólagönguna og byggja á réttindum, virðingu og sjálfsákvörðunarrétti. Umræðan snýst nú ekki síður um samskipti, mörk, samþykki, kynvitund, kynhneigð og gagnrýna hugsun gagnvart stafrænum miðlum en um líkamlega þætti. Samhliða þessari þróun hafa þó sprottið upp háværar samfélagslegar og pólitískar deilur um hversu langt skuli gengið og hvenær eigi að hefja fræðslu um flókin hugtök eins og kynvitund.

Þrátt fyrir miklar framfarir benda sérfræðingar í kynheilbrigði og ungmenni sjálf enn á að pottur sé brotinn. Borið hefur á skorti á samræmdu námsefni, fleiri sérhæfðum kennurum í þessum fræðum og skýrari framkvæmd í framhaldsskólum. Þróun kynfræðslu á Íslandi speglar þannig samfélagsbreytingar síðustu aldar – frá algjörri þögn og líffræðilegri einföldun yfir í flókna og lifandi umræðu um mannréttindi, vellíðan og samskipti í stafrænum heimi. Í dag er kennslan byggð á markmiðum aðalnámskrár grunnskóla sem og skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um viðmið í kynfræðslu. Alhliða kynfræðsla byggir á því að nemendur fái kynfræðslu frá unga aldri, fyrst byggist hún á fræðslu um samskipti og sjálfsmynd og eftir því sem nemendur þroskast og verða eldri verður kynheilbrigði stærri hluti námsins.

Læt ég hér lokið sögulegri yfirferð yfir þróun kynfræðslu liðinna áratuga. Nú hafa nefnilega nýjar vendingar átt sér stað í ljósi óvæntra frétta úr ónefndum grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þar hefur starfsfólk stigið skrefið í kynfræðslu alla leið, að vísu bakvið steint gler, en það er líklega svona aðlögun að öðru og meira síðar.

Magnús Magnússon