Förum varlega þegar jörðin er svona þurr

Það vorar hægt en sígandi hjá okkur þessa dagana. Þegar þetta var skrifað, síðdegis á þriðjudegi, lá snjór yfir norðanverðu landinu, gránað hafði í Stykkishólmi en hér sunnan heiða var auð jörð – en að sama skapi brakandi þurr. Þegar svona árar, fremur kalt er í veðri og þurrt svo dögum skiptir, tekur það langan tíma fyrir nýgræðinginn að teygja sig yfir sinuna frá síðasta ári. Sól fer hækkandi á lofti og hættan á gróðureldum vex þegar aðstæður eru með þessum hætti.

Á síðustu dögum hef ég fylgst með nokkrum útköllum slökkviliðsfólks hér á sunnanverðu Vesturlandi. Á laugardagskvöld kraumaði eldur í gömlu sumarhúsi í hrauninu norðan við Bifröst. Til stóð að flytja húsið og hafði verið unnið við að saga burt pallinn umhverfis það. Þegar slökkviliðsmenn mættu á staðinn höfðu þeir hins vegar meiri áhyggjur af gróðrinum umhverfis húsið, en húsinu sjálfu. Áhyggjur þeirra beindust að því ef mikill eldur hefði blossað upp hefði hann komist í gróður umhverfis og þá einnig til nærliggjandi húsa. Allt fór þó vel.

Á mánudag voru svo fleiri útköll. Meðal annars kviknaði í lithium batteríum við nýbýli í Melasveitinni. Þar er stundaður svokallaður sjálfbær búskapur sem meðal annars felst í því að allt rafmagn er framleitt með sólarsellum á staðnum og geymt í lithium rafhlöðum, sem eiga skylt við rafhlöður í símum eða bílum. Í þeim kviknaði og gjöreyðilögðust þau sem og húsið utan um batteríin. Þar höfðu slökkviliðsmenn einnig áhyggjur af lúpínu sem umlykur húsin, en hún er með verri þurrgróðri ef brennur. Það helgast af því að stilkur lúpínunnar er holur og geymir mikið súrefni til að fóðra eld. Þessi eldsvoði varð þó staðbundinn við rafhlöðurnar og náði ekki að breiðast út.

Svo í gær, um það leyti sem blaðið var á leið í prentun, kom upp talsverður gróðureldur í hlíðum Akrafjalls, nærri skógræktinni Slögu. Snör handtök slökkviliðsmanna komu í veg fyrir að eldurinn næði að læsa sig í skóginum. Enn var unnið við slökkvistarfið þegar blaðið var sent í prentun undir kvöld.

Það er ástæða til að hvetja alla til sérlegra mikillar aðgæslu þessa dagana vegna þess hversu viðkvæm náttúran er. Veður kann að breytast um og eftir næstu helgi með úrkomu, nægjanlega mikilli til að smáeldar hér og hvar hætti að gjósa upp. Meðfylgjandi mynd var tekin síðdegis í gær við Slögu í hlíðum Akrafjalls.

Magnús Magnússon