Dómsmálaráðherra flutti ávarp í upphafi fundar þar sem ný löggæsluáætlun var kynnt. Ljósm. Stjórnarráðið

Fjölga á lögreglumönnum og efla löggæslu

Fjölgun lögreglumanna, öflugri barátta gegn skipulagðri brotastarfsemi og aukin áhersla á sýnilega löggæslu í nærumhverfi fólks eru meðal helstu markmiða nýrrar löggæsluáætlunar fyrir árin 2027–2031. Áætlunin, sem ber heitið „Traust lögregla – Öruggt samfélag,“ var kynnt á morgunverðarfundi Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í Reykjavík í liðinni viku.

Með áætluninni er brugðist við breyttu öryggisumhverfi og sífellt flóknari verkefnum lögreglu. Þar vega þungt aukin umsvif alþjóðlegrar glæpastarfsemi, netbrot og vaxandi umferð um landamæri. Áhersla er lögð á að styrkja mannafla, menntun og sérhæfingu lögreglu, bæta viðbúnað og efla samstarf innanlands sem utan.

Jafnframt er stefnt að því að auka sýnileika lögreglu í samfélaginu og styrkja tengsl hennar við íbúa. Sérstök áhersla verður á forvarnir meðal barna og ungmenna, baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og mansali auk bættrar verndar brotaþola. Þá á að efla getu lögreglu til að takast á við netglæpi og aðrar stafrænar ógnir.

„Verkefni lögreglu verða sífellt flóknari en í grunninn snýst löggæsla alltaf um það sama: Öryggi fólks í landinu,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Hún segir mikilvægt að lögreglan geti tekist á við alvarlega brotastarfsemi en sé jafnframt sýnileg og aðgengileg almenningi. Áætlunin byggist á þremur meginstoðum; traustri lögreglu, öruggu samfélagi og faglegri og framsækinni löggæslu. Fyrir hverja þeirra eru skilgreind markmið og mælikvarðar svo hægt verði að fylgjast með árangri og gera úrbætur eftir þörfum.

Undirbúningur áætlunarinnar hófst í febrúar þegar dómsmálaráðherra skipaði stýrihóp undir forystu Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjóns. Við mótun stefnunnar var haft samráð við lögregluembætti landsins, ákæruvaldið, stofnanir og félagasamtök. Áætluninni er ætlað að marka stefnu í uppbyggingu og starfsemi íslensku lögreglunnar næstu fimm árin.