
Aðra leiðina
Það er óhætt að segja að mjög snúin staða sé að teiknast upp í efnahags- og kjaramálum hér á landi. Ljóst er að kjarasamningar eru í uppnámi í ljósi ákvæða um að verðbólga er nú meiri en gert var ráð fyrir í forsendum samninganna. Eftir rúma viku kemur í ljós hvort verkalýðsfélögin segi þeim upp. Því er byrjað að fara um aðila vinnumarkaðarins, stjórnvöld og sveitarfélög því lausir kjarasamningar munu tvímælalaust kalla á enn meiri óvissu á vinnumarkaði þar sem aðstæður eru bágar fyrir. Langvarandi verðbólga og alltof háir vextir eru farnir að býta svo um munar og til að mynda er byggingageirinn nánast kominn í frost.
Staðreyndin er sú að lægri verðbólga og skaplegri vextir eru hagsmunamál sem snertir samfélagið allt. Á það við um heimilin í landinu, hið opinbera og atvinnulífið. Hátt vaxtastig þyngir fjármagnskostnað, dregur úr fjárfestingargetu fyrirtækja og heimila og veikir kaupmátt launafólks. Það er því ekki ofsögum sagt að eitt helsta hagsmunamál samfélagsins um þessar mundir sé að ná niður vöxtum og verðbólgu og hefur þörfin á samstilltu átaki sjaldan verið meiri. Nánast jafn stórt hagsmunamál og var í aðdraganda þjóðarsáttar 1990.
Í ljósi þessa standa spjótin nú á stjórnvöldum. Í drögum að fjárlögum næsta árs er ljóst að ríkisstjórnin leggur til meiri hækkanir á ýmsum sköttum og gjöldum en verjandi er með tilliti til verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. Stjórnin er því í vanda stödd því nú í fyrsta skipti um árabil er lagt til að ríkissjóður verði hallalaus. Pressan til að slá af boðuðum hækkunum skatta og opinberra gjalda kemur nú m.a. frá sveitarfélögum sem í síðustu viku lofuðu því að hækka sjálf ekki gjöld á næsta ári umfram 2,5%. Þá hafa fleiri lagt sín lóð á vogarskálina og nægir að nefna allar stærstu verslanakeðjur landsins sem hafa sent frá sér yfirlýsingar á síðustu dögum um að þær ætli að draga verulega úr hækkunum og jafnvel að lækka vöruverð.
Ég er ekki í vafa um að skortur á aðhaldi undanfarin ár á sinn þátt í að hvorki hefur gengið né rekið að lækka vexti og draga úr verðbólgu. Hvorki stéttarfélög eða atvinnulífið, hvað þá stjórnvöld, hafa verið með einhver sérstök markmið um ráðdeildarsemi. Bara að hækka allt eins og enginn væri morgundagurinn. En í þessu eins og öðru kemur að skuldadögum. Nú er glímt við verðbólgu sem beinlínis má rekja til áhrifa verðtryggingar. Ef eitt hækkar, þá hækkar allt. Víxlverkun sem getur ekki annað en endað illa.
Það hefur þótt alltof sjálfsagt mál að ríkið slái lán ár eftir ár til að fjármagna rekstur sinn. Sveitarfélög eru lítið skárri, en mörg hafa þau fjárfest langt umfram getu í einhverju sem hefði mátt bíða og jafnvel flokkast ekki undið lögbundið hlutverk þeirra. Einhver óskiljanlegur mælikvarði um skuldir þeirra er heimild til að mega skulda allt að 150% af veltu. Í sjálfu sér er það alveg galinn mælikvarði þegar horft er til lánskjara þar sem við búum við lítinn og óstöðugan gjaldmiðil. Í núverandi kerfi eru það nefnilega alltaf lánveitendur sem eru tryggðir fyrir áföllum, bæði með belti og axlaböndum, en skuldarinn blæðir. Eða eins og Guðni Th. Jóhannesson fv. forseti sagði réttilega í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst; „það er gott að eiga pening á Íslandi, en afleitt að skulda.“
Einhvern veginn er þjóðin komin upp að vegg í þessu öllu saman, eða réttara sagt stjórnvöld, atvinnulífið og launþegar. Það gengur ekki að hækka verðlag því það hefur margfeldisáhrif í okkar séríslensku verðtryggingu. Það er því komið að endimörkum hennar. Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig úr þessu verður leyst í haust og framan af vetri. Allavega eru forsendur kjarasamninga brostnar og hvað tekur þá við? Ef verkföll er svarið spái ég því að töluverð eftirspurn verði eftir flugmiðum aðra leiðina – eitthvert.
Magnús Magnússon