
Að fá sólina beint í æð
Liðin vika var bara býsna fróðleg þótt komið sé fram á hásumar. Fyrir helgi lauk Alþingi störfum. Veður var með þeim hætti að frumvörp voru afgreidd á færibandi eins og enginn væri morgundagurinn. Þingmenn voru glaðari við þinglok en kýr sem fá að fara út úr fjósinu snemma sumars. Við segjum í Skessuhorni vikunnar frá nokkrum málum sem lokið var við, enda snerta þau hag íbúa. Til dæmis er nú að nýju hægt að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði inn á húsnæðislán. Líklega er það skynsamlegasta ráðstöfun sem við skuldugir húseigendur getum gert. Greiða ekki skatta af upphæðinni og lækka höfuðstól lána sem bera eina hæstu vexti í hinum vestræna heimi. Allt að fimm hundruð þúsund krónum á ári má þannig ráðstafa inn á lánin og það munar um minna.
En það voru fleiri þingmál sem vöktu athygli mína. Til dæmis var samþykkt frumvarp umhverfisráðherra um takmörkun vindorkunýtingar. Í lögunum er fallið frá hugmyndum fyrri ára um flýtimeðferð vindorkuvera fram hjá rammaáætlun. Óhætt er að segja að reglur villta vestursins hafi átt við um vota drauma erlendra oligarka sem helgað hafa sér bæjarhóla víða um land í þeim tilgangi að reisa þar vindorkuver, þvert gegn vilja nágranna og annars fólks sem lætur sér annt um umhverfið. Vonandi slá ný lög á gróðafýkn þeirra umhverfinu og almennri lýðheilsu til heilla. Loks má nefna að samþykkt voru lög um nýja Stofnun atvinnuveganna sem leysir um áramótin af hólmi fjórar aðrar stofnanir. Að fækka stofnunum um þrjár er út af fyrir sig ágætt, báknið þarf jú að hófstilla. Umdeildara í þeim lögum er hins vegar sú ráðstöfun að færa matvælaeftirlit frá sveitarfélögum til ríkisins. Starfsfólki heilbrigðisnefnda sem nú missir vinnu sína, er hins vegar lofað að ganga fyrir um ný störf. Sjáum til hvernig það verður efnt.
En liðin vika var um margt áhugaverð. Íbúar á Akranesi tóku á móti fjölda gesta um liðna helgi þegar börn kepptu í fótbolta. Fjöldi íbúa tvöfaldaðist í þrjá daga og allt iðaði af lífi. Verslanir nutu góðs af viðburðinum og ýmsir þjónustuaðilar höfðu í nægu að snúast. Umfram annað eru svona mannamót góð til markaðssetningar bæjarfélaga ef vel er að þeim staðið. Þarna kemur ungt fólk með börnin sín og sér að hér er allt í þokkalegu lagi. Minningar um sólríka daga á Skaga gera það að verkum að kannski verða einhverjir sem flytja vilja búferlum á svæðið. Það eru virkilega sóknarfæri í því sambandi ef litið er til fjölda nýrra og óseldra íbúða. Hér eru skólar og umgjörð um fjölskylduna með miklum ágætum og örugglega hagur bæjarsjóðs að íbúum fjölgi.
Framundan er tími bæjar- og héraðshátíða. Það eru átthagamót sem margir leggja metnað sinn í að leysa vel úr hendi og bjóða íbúa og gesti þeirra velkomna. Tækifæri til að heimsækja vini og ættingja, hitta mann og annan og gleðjast. Um næstu helgi er til dæmis Brákarhátíð í Borgarnesi, Skotthúfan í Stykkishólmi og glerlistarhátíð hefst á Hellissandi. Viku síðar verður svo bæjarhátíðin Heim í Búðardal haldin með pompi og prakt. Loks mun þjóðlagasveitin Slitnir strengir koma fram næstkomandi þriðjudagskvöld á bryggjusvæðinu á Akranesi og Írskir dagar á Akranesi haldnir í kjölfarið.
Ástæða er til að hvetja fólk til að njóta sumarsins hvert með sínum hætti. Sumir velja útiveru; silungsveiði, fjallgöngur, hlúa að gróðri eða hvaðeina sem hentar fólki. Við erum búin að vera heppin með veður það sem af er sumri. Bændur eru margir búnir að nýta þurrkinn og náð frábærum heyjum. Það leggur grunn að bættri afkomu búanna næsta vetur. Hvalveiðar eru hafnar eftir tveggja ára hlé og margir sem fá vinnu við veiðar og vinnslu.
Holl útivera leggur grunn að bættri líkamlegri og andlegri heilsu, besta vegarnesti sem í boði er til að mæta nýju hausti.
Magnús Magnússon