
ÍA lék sinn fyrsta leik í Pepsi deild kvenna í knattspyrnu á Akranesvelli í dag þegar FH-ingar komu í heimsókn. Um nýliðaslag var að ræða, en bæði lið tryggðu sér sæti í deild þeirra bestu fyrir þetta keppnistímabil. Skagakonur fengu ekki sína óskabyrjun í Íslandsmótinu þetta árið, því FH-ingar sigruðu með einu marki gegn engu.…Lesa meira








